Atvinnuleyfi og -réttindi útlendinga
Um atvinnuréttindi útlendinga gilda lög nr. 97/2002 sem tóku gildi 1. janúar 2003. Félagsmálaráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögunum en Vinnumálastofnun fer með framkvæmd laganna í umboði ráðherra.
Eyðublöð má nálgast á vefsíðu VMST, á skrifstofum Vinnumálastofnunar og hjá Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja heimild er setur skorður á frjálsa för ríkisborgara frá Rúmeníu og Búlgaríu til atvinnuþátttöku hér á landi til ársins 2012. Atvinnuþátttaka þeirra á íslenskum vinnumarkaði verður því áfram háð dvalar- og atvinnuleyfum.
Tímabundnum atvinnuleyfum skipt upp í eftirtalda sex flokka:
- Tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar (8.gr.)
- Tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli (9.gr.)
- Tímabundið atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk (10.gr.)
- Tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra ástæðna (11.gr.)
- Tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar (12.gr.)
- Tímabundið atvinnuleyfi vegna náms (13.gr.)
Tengiliður
Baldur Aðalsteinsson
Deildarstjóri
baldur.adalsteinsson@vmst.is
Sími 515 - 4800
Bréfasími 511 - 2520
Kringlunni 1
103 Reykjavík




English

