Starfsmannaleigur
Lög um starfsmannaleigur tóku gildi í ársbyrjun 2006. Tilgangur laganna er að skýra línur varðandi gildi íslenskra kjarasamninga á Íslandi óháð því hvort starfsmenn eru í beinu ráðningarsambandi við fyrirtækið eða vinna fyrir milligöngu starfsmannaleigu. Löggjöfin tekur einnig mið af ákvæðum EES-samningsins um frelsi í þjónustuviðskiptum sem og reglum um frjálst flæði vinnandi fólks milli EES-landanna. Í lögunum er einnig bann við því að starfsmannaleigur láti starfsmenn sína greiða gjald fyrir það að fá vinnu.
Einungis starfsmannaleigur með staðfestu á Íslandi, öðrum EES-löndum og Sviss mega starfa hér á landi. Erlendar starfsmannaleigur þurfa að að sýna fram á að þær séu löglega skráðar og með starfsleyfi í heimalandinu.
Öllum starfsmannaleigum, íslenskum sem erlendum er skylt að skrá fyrirtækið og alla starfsmenn sem vinna á þess vegum hér á landi hjá Vinnumálastofnun. Erlendum starfsmannaleigum skylt að hafa fulltrúa hér á landi, séu þær með starfsemi í meira en 10 daga á ári.
Starfsmannaleiga er í lögunum skilgreind sem þjónustufyrirtæki sem leigir út starfsmenn til notendafyrirtækja gegn gjaldi. Starfsmennirnir eru undir verkstjórn notandans. Starfsmannaleigur skulu veita Vinnumálastofnun upplýsingar sem stofnunin telur nauðsynlegar til að fylgjast með framkvæmd laganna, þar á meðal afrit af ráðningarsamningum starfsmanna og þjónustusamningum við notendafyrirtæki.
Frá og með 1. maí 2006 er aflétt hömlum sem voru á heimildum íslenskra starfsmannaleiga til að ráða til sín og leigja út starfsmenn frá nýju EES-löndunum í Austur Evrópu (Póllandi, Ungverjalandi, Tékklandi....). Nú þurfa ríkisborgarar frá þessum löndum ekki lengur atvinnuleyfi, en þeim ber eins og öðrum EES-borgurum að sækja um dvalarleyfi ef þeir dvelja lengur en 3 mánuði hér á landi.
Skattamál: Starfsmenn á vegum starfsmannaleiga eru skattskyldir af launatekjum sem þeir vinna sér inn hér á landi. Varðandi greiðslu tryggingagjalds skiptir máli hvort starfsmaður er með vottorð E-101 frá heimalandinu. Sjá nánar í orðsendingu 3/2005 frá Ríkisskattstjóra.
Tengd skjöl
Tengiliður
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Aðalsteinsson
Deildarstjóri
baldur.adalsteinsson@vmst.is
Sími 515 - 4800
Bréfasími 511 - 2520
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
150 Reykjavík




English

