Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Tímabundin atvinnuleyfi

Tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar

Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi sem krefst sérfræðiþekkingar. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæði þessu eru m.a. eftirfarandi:

  • skilyrði a–e-liða 1. mgr. 7. gr. séu uppfyllt á eyðublaði,
  • útlendingur hafi gert ráðningarsamning við atvinnurekanda um að gegna tilteknu starfi sem krefst sérfræðiþekkingar enda sé ekki um að ræða tímabundið verkefni,
  • sérfræðiþekking útlendingsins sé nauðsynleg hlutaðeigandi fyrirtæki, og
  • sérfræðiþekking útlendingsins feli í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi.

Vinnumálastofnun óskar staðfestingar á menntun útlendingsins með viðeigandi skilríkjum í samræmi við íslenskar reglur telji stofnunin slíkt nauðsynlegt.


Tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli

Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA- ríkjum eða í Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæði þessu eru m.a. að skilyrði 1. mgr. 7. gr. séu uppfyllt.


Tímabundið atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk

Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfa íþróttafólks hjá íþróttafélagi innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæði þessu eru m.a. að skilyrði c–e-liða 1. mgr. 7. gr. séu uppfyllt.


Tímabundið atvinnuleyfi vegna sérstakra ástæðna

Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi í undantekningartilvikum þegar eftirfarandi skilyrði eru m.a. uppfyllt:

  • útlendingi hafi áður verið veitt bráðabirgðadvalarleyfi, dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt lögum um útlendinga eða dvalarleyfi skv. 3. mgr. 11. gr. laga um útlendinga, og
  • skilyrði c- og d-liðar 1. mgr. 7. gr. séu uppfyllt á eyðublaði.


Tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar

Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfa nánustu aðstandenda útlendings sem hefur tímabundið atvinnuleyfi skv. 8. gr. laganna, tímabundið atvinnuleyfi sem tengist dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 11. gr. laganna eða óbundið atvinnuleyfi að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 7. gr.


Tímabundið atvinnuleyfi vegna náms

Heimilt er að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna starfa útlendings sem stundar nám hér á landi. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæði þessu eru m.a. eftirfarandi:

  • skilyrði c- og d-liðar 1. mgr. 7. gr. séu uppfyllt og
  • útlendingi hafi verið veitt dvalarleyfi vegna náms samkvæmt lögum um útlendinga.

Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu