Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Útsendir starfsmenn

Lög um útsenda starfsmenn erlendra fyrirtækja 45/2007

Markmið laganna
Ný lög 45/2007 um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands voru samþykkt á Alþingi. Markmið laganna er að skýra línur og efla eftirlit varðandi gildi íslenskra kjarasamninga og annarra starfskjara á Íslandi um aðbúnað, óháð því hvort fyrirtækið er íslenskt eða erlent. Lögunum er ætlað að tryggja enn frekar að útlendingar sem hingað koma tímabundið á vegum erlendra fyrirtækja starfi hér á landi með löglegum hætti.  Lögin taka mið af ákvæðum EES-samningsins og tilskipunum ESB um þjónustuviðskipti, stuðla að jafnri samkeppnisstöðu íslenskra og erlendra fyrirtæki og er ætlað að vinna gegn félagslegum undirboðum.  

Fyrirtæki innan EES
Lögin gilda um fyrirtæki með staðfestu í öðru ríki innan EES, öðru EFTA-ríki eða Færeyjum, sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands í sambandi við veitingu þjónustu eða undirverktöku. Það er skilyrði að útsendir starfsmenn séu með ríkisborgararétt í einhverju ofangreindra landa eða með atvinnuleyfi (grænt kort) í heimalandi fyrirtækisins.  

Upplýsingaskylda
Samkvæmt lögunum er erlenda fyrirtækinu skylt að upplýsa Vinnumálastofnun eigi síðar en átta virkum dögum áður en þjónustan/verkið hefst á Íslandi. Tilkynna skal verkefni sem tekur tíu virka daga eða lengur og starfsmenn sem koma að því. Notendafyrirtæki (fyrirtæki á Íslandi sem notar þjónustu hins erlenda fyrirtækis) ber að sjá til þess að hið erlenda fyrirtæki skrái sig hjá Vinnumálstofnun, ef hið erlenda fyrirtæki vanrækir það ber notandafyrirtæki að afla viðeigandi upplýsinga. Fyrirtæki á sviði bygginga og mannvirkjagerðar (aðalverktaki) ber að afhenda skriflega staðfestingu um að undirverktakar sem starfa á þess vegum hafi skráð sig hjá Vinnumálastofnun.  

Staðfesting á skráningu
Erlendu fyrirtækin fá tölvupóst til staðfestingar á skráningu fyrirtækisins. Þegar Vinnumálastofnun hefur fengið nöfn og aðrar uppýsingar um starfsmenn sem fyrirtækið mun senda til Íslands mun það fá sendan lista yfir virka starfsmenn með tölvupósti. Hvort tveggja eru lögleg gögn sem fyrirtækið þarf að sýna notandafyrirtæki/aðalverktaka.  

Sérstakur fulltrúi
Erlendum fyrirtækjum með starfsemi á Íslandi í meira en fjórar vikur á tólf mánuðum og sex menn eða fleiri við störf er skylt að hafa sérstakan fulltrúa á Íslandi sem sér um skráningarmál og önnur lögbundin samskipti við íslensk yfirvöld.  

Eftirlit og viðurlög
Vinnumálastofnun hefur eftirlit með framkvæmd laganna. Stofnunin getur kallað eftir nánari upplýsingum. Fari fyrirtæki ekki að fyrirmælum Vinnumálastofnunar varðandi lögbundnar upplýsingar eða ljóst þykir að það fari ekki að kjarasamningum getur stofnunin krafist þess að lögregla stöðvi vinnu tímabundið eða loki starfsemi fyrirtækisins hér á landi þar til úrbætur hafa verið gerðar.

Skráning fer fram rafrænt, smellið hér og skráið inn:

  1. Fyrirtækið
  2. Skráning notandafyrirtækis/samnings við notandafyrirtæki
  3. Skráning starfsmanna

Tengiliður

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Aðalsteinsson
baldur.adalsteinsson@vmst.is
Sími 515 - 4800
Engjateigur 11, 105 Reykjavík


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu