Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Úrræði og átaksverkefni

Forsíða:

Atvinnurekandi - Úrræði og átaksverkefni

Vinnumálastofnun vinnur með ýmis vinnumarkaðsúrræði og önnur verkefni í samvinnu við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.

Átakið Vinnandi  vegur er tímabundið átaksverkefni frá 15. febrúar til 31. maí og tekur til ráðninga á því tímabili og allra vinnumarkaðsúrræða. Önnur vinnumarkaðsúrræði eru því ekki í gildi á þessum tíma.

Greiðslur atvinnurekenda vegna Vinnandi vegs:

  • Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.
  • Atvinnurekandi sendir reikninginn til:

    Vinnumálastofnun
    b.t.  Gunnars Richardssonar
    Kringlunni 1
    103 Reykjavík
  • Gunnar yfirfer reikningana.  Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
  • Afrit launaseðils skal fylgja reikningi
  • Á reikningnum skal koma fram: 
          a. Nafn atvinnuleitanda 
          b. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
          d. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við

Nánri upplýsingar um verkefnið er hægt að finna hér


  • Starfsþjálfun og reynsluráðning eru vinnumarkaðsúrræði sem góð reynsla er komin á og hefur sýnt sig að eru gagnleg úrræði fyrir atvinnuleitendur og nýtast atvinnurekendum vel sem vilja þjálfa upp nýtt starfsfólk. Af svipuðum toga eru sérstök átaksverkefni sem eru yfirleitt skipulögð af stofnunum, sveitarfélögum eða fyrirtækjum fyrir smærri hópa atvinnuleitenda í samvinnu við Vinnumálastofnun.
  • Starfsorka er heiti á verkefni um nýsköpun og vöruþróun sem Vinnumálastofnun vinnur með fyrirtækjum í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð.
  • Önnur vinnumarkaðsúrræði sem Vinnumálastofnun sinnir í samvinnu við atvinnurekendur, stofnanir og sveitarfélög er atvinnutengd endurhæfing og sjálfboðaliðastarf.
  • Undanfarin misseri hefur sérstök áhersla verið lögð á virkni ungra atvinnuleitenda. Með átakinu Ungt fólk til athafna hefur Vinnumálastofnun unnið að fjölmörgum úrræðum í samvinnu við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög, auk skóla og símenntunaraðila, þar sem áhersla hefur verið á að virkja unga atvinnuleitendur og veita þeim aukna þekkingu og hæfni á vinnumarkaði.
  • Með átakinu ÞOR - þekking og reynsla hefur verið lögð áhersla á að virkja þann hóp einstaklinga sem kominn er yfir þrítugt og hefur verið atvinnulaus um lengri tíma með það að markmiði að bæta stöðu þeirra á vinnumarkaði. Með átakinu hefur verið lögð áhersla á samvinnu við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög auk skólakerfisins og símenntunarmiðstöðva, með áherslu á starfstengd úrræði í bland við nám og endurmenntun.
  • Sumarátak fyrir námsmenn er verkefni sem Vinnumálastofnun hefur unnið að í samvinnu við sveitarfélög og stofnanir ríkisins. Með átakinu er leitast við að veita námsmönnum sem eru milli anna í skólakerfinu fjölbreytt störf yfir sumarmánuðina.

Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu