Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

ÞOR - Þekking og reynsla

logo_ÞOR_clip

1. ágúst 2010 hleypti Vinnumálastofnun af stað sérstöku átaki gegn afleiðingum langtímaatvinnuleysis undir yfirskriftinni ÞOR - þekking og reynsla.  Markmiðið með átakinu er að virkja þann hóp einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir í tólf mánuði eða lengur til þátttöku í fjölbreytilegum vinnumarkaðsúrræðum. 

Á næstu mánuðum verða allir þessir einstaklingar kallaðir til ráðgjafafundar á vegum Vinnumálastofnunar og þeim kynntir með öflugum og markvissum hætti tækifæri og skyldur þeirra til þátttöku úrræðum sem eiga að auka möguleika þeirra í atvinnuleitinni. Um 4000 manns hafa nú verið atvinnulausir í eitt ár eða lengur og Vinnumálastofnun hefur sett sér það markmið að nálgast þá alla fyrir 1. nóvember nk.

Leitað hefur verið samstarfs við fjölda fræðsluaðila, fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka um virkniúrræði og þá hefur stofnunin átt samræðu við símenntunardeildir háskólanna en kraftar þeirra hafa til þessa lítið verið nýttir atvinnuleitendum til hagsbóta. Um 70 úrræði standa atvinnulausum nú til boða, mismunandi eftir menntun og starfsreynslu hvers og eins.   

Reynslan og skipulag verkefnisins Ungt fólk til athafna (UFTA) verður nýtt í ÞOR-verkefninu.  Árangurinn af UFTA-verkefninu er sá að búið er að virkja 90% af hópi atvinnuleitenda á aldrinum 16 - 25 ára, sem voru rúmlega 3.000 þegar átakið var sett af stað 1. febrúar sl. UFTA-verkefnið hefur nú bætt við sig hópnum á aldinum 25 - 29 ára en ÞOR-verkefnið mun sinna hópnum frá 29 til 70 ára.

 

ÞOR ferlið

  1. Einstaklingar eru kallað inn á fund í 40 - 60 manna hópum, en fundarboð berst til viðkomandi með tölvupósti og sms.
  2. Athugið að skyldumæting er á boðaða fundi og þeir sem ekki mæta fá send bréf um afskráningu af atvinnuleysisbótum.
  3. Ef viðkomandi er enn í virkri atvinnuleit þarf að hafa samband innan ákveðinna tímamarka og gera grein fyrir fjarveru.
  4. Á ÞOR kynningarfundum eru úrræði í boði kynnt, með mismunandi áherslum út frá hópum.
  5. Einstaklingar fá í hendur valblað og merkja við þrjú úrræði sem höfða mest til þeirra, en einungis eitt úrræði er í boði fyrir hvern.
  6. Úrræðin/Námskeið hefjast á haustmánuðum og eru einstaklingar látnir vita með sms og tölvupósti hvenær valið námskeið hefst.
  7. Að námskeiði loknu eru einstaklingar kallaðir til viðtals, þar sem þeim er fylgt eftir og hvattir til áframhaldandi virkni og atvinnuleitar.

Hafa samband

Aðsetur ÞOR átaksins er í Kringlunni 1 103 Reykjavík.
 sími 515-4800:


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu