Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Ungt fólk til athafna

Ungt fólk - haus

Réttur til vinnu eða virkni

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur falið Vinnumálastofnun að tryggja það markmið að enginn verði atvinnulaus lengur en þrjá mánuði án þess að bjóðast vinna eða virkniúrræði.

Þessu markmiði skal náð gagnvart fólki yngra en 25 ára fyrir 1. apríl 2010 og 1. september 2010 fyrir aðra.

Vinnumálastofnun mun ná settu markmiði í nánu samstarfi við stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög.


Fimm leiðir til framtíðar

Settar hafa verið upp 5 leiðir sem til samans er ætlað að mynda yfir 2.000 ný starfs- eða námstækifæri fyrir ungt fólk: 

  1. allt að 450 ný námstækifæri í framhaldsskólum landsins fyrir ungt fólk án atvinnu
  2. allt að 700 ný námstækifæri fyrir fólk án atvinnu til náms á vegum símenntunarstöðva
    og til aðfararnáms að frumgreinadeildum
  3. allt að 450 ný starfsþjálfunarpláss og störf við átaksverkefni á vegum félagasamtaka,
    sveitarfélaga og annarra
  4. allt að 400 ný sjálfboðastörf
  5. allt að 400 ný pláss á vinnustofum ásamt endurhæfi ngar- og meðferðarúrræðum

 

Áhugi á samstarfi?

Til að hrinda verkefninu í framkvæmd óskar Vinnumálastofnun eftir:

  • hugmyndum um átaksverkefni, sjálfboðaliðastörf, menntunar- og meðferðarúrræði
  • sjálfboðaliðum til að starfa með ungu atvinnulausu fólki
  • starfsþjálfunarplássum fyrir unga atvinnuleitendur hjá fyrirtækjum og stofnunum

Hafðu samband ef áhugi er fyrir hendi! 

Hverjir eru samstarfsaðilar að verkefninu?

Sífellt bætist í hóp samstarfsaðila vegna verkefnisins, hér má nefna nokkra:

  • Hitt húsið
  • ÍSÍ - Íþrótta- og ólympíusamband Íslands
  • Fjölbrautarskólinn í Breiðholti
  • Mímir - símenntun
  • Menntaskólinn í Kópavogi
  • Grunnmenntaskólinn

Hafa samband

Fyrirspurnir og ósk um nánari upplýsingar má senda á Hrafnhildi Tómasdóttur hrafnhildur.tomasdottir@vmst.is hefur yfirumsjón með verkefninu af hálfu Vinnumálastofnunar.

Einnig er hægt að hafa samband í síma 515 4800, senda á netfangið ungir@vmst.is eða koma til okkar á þjónustuskrifstofuna, Kringlunni 1
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu