Vinnumarkaðsúrræði
Meðal verkefna Vinnumálastofnunar er að annast skipulag vinnumarkaðsúrræða, en þar er um að ræða styttri námskeið, starfstengd úrræði, námsúrræði, atvinnutengd endurhæfing og ráðgjöf.
Þjónusta ráðgjafa Vinnumálastofnunar miðast við einstaklingsbundnar þarfir hvers og eins atvinnuleitanda, þar sem lagt er mat á vinnufærni atvinnuleitanda þegar hann sækir um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Á grundvelli matsins er gerð áætlun um atvinnuleit hans og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum, eða honum leiðbeint um aðra þjónustu ef þörf er talin á.
Vinnumálastofnun er heimilt að veita styrki úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þátttöku þeirra sem tryggðir eru úr sjóðnum í vinnumarkaðsaðgerðum sem nemur bótarétti þeirra.
Samvinnan er vinnumarkaðsúrræði með þáttöku fyrirtækja, sveitarfélaga, stofnana eða frjálsa félagasamtaka.
Hvernig virkar samvinnan?
Fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir og frjáls félagasamtök geta fjölgað starfsmönnum með þáttöku í vinnumarkaðsúrræðum. Atvinnurekandi ræður einstakling sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins.
Atvinnurekandi greiðir einstaklingnum laun samkvæmt gildandi kjarasamningum en á móti þeim greiðslum greiðir Vinnumálastofnun atvinnurekandanum grunnatvinnuleysisbætur einstaklingsins ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð.
Vinnumarkaðsúrræði í samvinnu Vinnumálastofnunar og fyrirtækja, sveitarfélaga, stofnana eða frjálsra félagasamtaka:
|
STARFSÞJÁLFUN
- Ráðningin skal fela í sér aukningu í starfsmannafjölda.
- Einstaklingur í starfsþjálfun má ekki hafa starfað innan greinarinnar áður eða lengri tími en 1 ár er liðinn síðan hann lét af störfum innan hennar.
- Samningurinn er gerður til 6 mánaða að hámarki og hann má ekki framlengja vegna sama einstaklings, nema hann hafi skerta starfsorku og þurfi nauðsynlega lengri tíma.
|
STARFSORKA
- Fyrir fyrirtæki eða stofnanir sem vilja þróa nýja viðskiptahugmynd á sviði nýsköpunar eða vöruþróunar.
- Ráðningin skal fela í sér aukningu á starfsmannafjölda.
- Nýsköpunarmiðstöð Íslands skal votta nýsköpunarvægi verkefnisins.
- Framvinduskýrslu skal skilað til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands eftir 3 mánuði og aftur við lok verkefnis.
- Verkefnið þarf að vera til þess fallið að veita atvinnuleitanda framtíðarstarf. Samninginn má framlengja um 6 mánuði að fenginni umsögn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
|
|
REYNSLURÁÐNING
- Ráðningin skal fela í sér aukningu á starfsmannafjölda.
- Einstaklingurinn skal fá tækifæri til að öðlast reynslu á starfssviði atvinnurekanda í þeim tilgangi að stuðla að framtíðarráðningu.
- Atvinnurekandi skuldbindur sig til að ráða einstaklinginn til starfa að samningi loknum í a.m.k. jafn langan tíma og gildistími samningsins kvað á um.
- Samningurinn er gerður til 6 mánaða að hámarki og hann má ekki framlengja vegna sama einstaklings, nema hann hafi skerta starfsorku og þurfi nauðsynlega lengri tíma.
|
SÉRSTAKT ÁTAKSVERKEFNI
- Fyrirtæki, stofnanir eða frjáls félagasamtök geta ráðið atvinnuleitanda til að sinna tímabundnum verkefnum umfram venjuleg umsvif.
- Samningurinn er gerður til 6 mánaða og ekki framlengdur vegna sama atvinnuleitanda.
- Ráðningin skal fela í sér aukningu á starfsmannafjölda.
|