Eigið frumkvöðlastarf
Eigið frumkvöðlastarf
Eigið frumkvöðlastarf er samstarfsverkefni milli Vinnumálastofnunar (VMST) og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) sem hefur það að markmiði að skapa störf fyrir fólk í atvinnuleit með fræðslu og handleiðslu við eigið frumkvöðlastarf. Allir atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og vilja vinna að eigin viðskiptahugmynd geta sótt um þátttöku í verkefninu. Verkefnið getur varað í allt að sex mánuði og hægt er að sækja um framlengingu í aðra sex mánuði ef frumkvöðlastarfið inniheldur mikla nýsköpun og er ekki í beinni samkeppni við innlenda starfsemi.
Markmið
- Að fólk í atvinnuleit skapi sér störf við eigin rekstur
- Að veita atvinnuleitendum fræðslu um undirbúning, stofnun og rekstur fyrirtækja
- Að styðja við atvinnuleitendur við að skapa sér eigin atvinnutækifæri
Forsendur
Forsendur fyrir þátttöku í verkefninu:
- Að atvinnuleitandi sé tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins og eigi rétt á atvinnuleysisbótum
- Að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit og á skrá hjá Vinnumálastofnun þegar þátttaka í úrræði hefst
- Að atvinnuleitandi skuldbindi sig til að vinna í fullu starfi að eigin viðskiptahugmynd í samræmi við umsókn/viðskiptaáætlun, hvort sem um er að ræða nýsköpunar- eða þróunarverkefni eða aðra sjálfstæða starfsemi
- Að atvinnuleitandi kynni sér rekstur fyrirtækja á samningstímanum og þiggi ráðgjöf Nýsköpunarmiðstöðvar varðandi eigið frumkvöðlastarf
- Að atvinnuleitandi skili inn verk- og tímaáætlun í byrjun tímabils eftir viðtal með ráðgjafa Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
- Að atvinnuleitandi sé í reglulegu sambandi við ráðgjafa Nýsköpunarmiðstöðvar á meðan unnið er að eigin viðskiptahugmynd, samkvæmt verk- og tímaáætlun, en þarf ekki að stunda virka atvinnuleit á meðan
- Að atvinnuleitandi taki þátt í lokamati, sem tekur m.a. til vinnunnar í verkefninu og árangurs af þátttöku. Niðurstaðan verður send Vinnumálastofnun
- Að atvinnuleitandi greini satt og rétt frá högum sínum. Rifta má samningi verði breyting á stöðu atvinnuleitanda eða ef ekki eru taldar líkur á að verkefnið skili tilætluðum árangri
Framkvæmd
Atvinnuleitendur fylla út rafræna umsókn á heimasíðu NMÍ.
1. Mat umsókna
Matshópur á vegum NMÍ og VMST metur hvort viðkomandi umsókn uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til þátttöku. Verkefnisstjóri NMÍ sendir rafrænt svar til umsækjanda þar sem fram kemur niðurstaða matshóps.
2. Undirbúningsfundur
Uppfylli umsækjandi skilyrði um þátttöku boðar verkefnisstjóri NMÍ hann til fundar um verkefnið. Á fundinum er framvinda verkefnisins kynnt og þörf fyrir fræðslu um undirbúning, stofnun og rekstur fyrirtækja metin. Atvinnuleitandi fær leiðbeiningar um gerð verkáætlunar og gögn til að búa til eigin verkáætlun. Á þessu stigi er einnig metið hvort verkefnið sé þess eðlis að atvinnuleitandi geti fengið aðstöðu á frumkvöðlasetri.
3. Undirritun samnings
Innan tveggja vikna frá undirbúningsfundi er haldinn annar fundur þar sem atvinnuleitandi leggur fram verkáætlun og samningur um verkefnið er undirritaður.
4. Handleiðsla, fræðsla og eftirfylgni
Þegar samningur hefur verið undirritaður hefst atvinnuleitandi handa við verkefnið. Verkefnisstjóri NMÍ veitir handleiðslu og leiðbeiningar eftir þörfum og atvinnuleitandi tekur einnig þátt í námskeiðum samkvæmt verkáætlun. Verkefnisstjórar NMÍ fylgjast með framvindunni bæði á fundum, í gegnum síma og tölvupóst eða á starfstöð atvinnuleitanda.
5. Stöðumat
Innan þriggja mánaða frá undirritun samnings fer fram stöðumat á verkefninu sem sent er VMST. Ef verkefnið gengur samkvæmt áætlun er því haldið áfram, en ef framvinda víkur verulega frá því sem áætlað var munu fulltrúar VMST og NMÍ skoða hvort raunhæft er að halda því áfram.
6. Lokaskýrsla
Innan sex mánaða frá undirritun fer fram lokafundur atvinnuleitanda og verkefnisstjóra NMÍ. Lokamat er lagt á verkefnið og niðurstöður sendar VMST.
7. Verkefni sem innihalda mikla nýsköpun
Ef verkefni inniheldur mikla nýsköpun og er ekki í beinni samkeppni við vörur eða þjónustu sem þegar eru í boði hér á landi getur atvinnuleitandi sótt um framlengingu á þátttöku í allt að sex mánuði til viðbótar. Verkefnisstjóri leiðbeinir atvinnuleitanda um slíka umsókn, en matshópur NMÍ og VMST tekur ákvörðun um hvort samningurinn verði framlengdur.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað
Verkefnið er alltaf opið til umsóknar og eru umsóknir teknar fyrir á tveggja vikna fresti. Umsóknareyðublað
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri í s: 522 9435 / sigurdurs@nmi.is
Tengd skjöl
Tengiliður
Margrét Gunnarsdóttir
Deildarstjóri
margret.gunnarsdottir@vmst.is
Sími 515 - 4800
Kringlunni 1
103 Reykjavík




English

