Sérstakt átaksverkefni
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við fyrirtæki, stofnun eða frjáls félagasamtök um að ráða atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins til að sinna sérstökum tímabundnum átaksverkefnum sem eru umfram lögbundin og venjuleg umsvif.
Skilyrði fyrir gerð samnings um sérstakt átaksverkefni
- Sveitarfélög, ríkisstofnanir, fyrirtæki og frjáls félagasamtök geta sótt um átaksverkefni
- Verkefnið skal vera afmarkað í tíma og rúmi
- Verkefnið skal vera samfellt í tíma
- Verkefninu þarf að vera lokið ári eftir að umsókn barst Vinnumálastofnun
-
Verklýsing sé vel unnin og kostnaðaráætlun skýr
- Gæta skal samkeppnissjónarmiða eins og kostur er
- Verkefnin þurfa að vera umfram lögbundin og venjuleg umsvif
- Ráðning atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannahaldi
- Æskilegt er að verkefni nýtist báðum kynjum
- Sveitarfélög geta ekki sótt um átaksverkefni fyrir verkstjóra verkefna. Þeir verða að hafa fastráðningu hjá sveitarfélögunum.
- Sveitarfélög hafa möguleika á að semja við fyrirtæki um aðstöðu eða tækjaleigu fyrir starfsfólk sem sveitarfélagið ræður í átaksverkefni. Mikilvægt er að gera nákvæma grein fyrir slíkum kostnaði í kostnaðaráætlun.
Umsóknarferli
- Ráðgjafahópur metur og afgreiðir umsóknir á vikulegum fundum á þriðjudögum. Til að umsóknir verði teknar fyrir og afgreiddar þurfa þær að hafa borist fyrir hádegi á mánudögum
- Þegar umsókn hefur verið samþykkt sendir ráðgjafi á Sauðárkróki upplýsingar þar um til umsækjanda
- Á þjónustuskrifstofu er í samvinnu við umsækjanda leitað að hæfu fólki til þess að vinna í átaksverkefninu
- Ráðgjafar Vinnumálastofnunar samþykki alla jafna einstaklinga í átaksverkefni. Leitast verði við að finna til að byrja með atvinnuleitendur með 100% bótarétt
- Gerður er þríhliða samningur atvinnurekanda, atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar. Allir aðilar þurfa að undirrita hann
- Samningarnir skulu gerðir til tímabils sem getur verið frá 1 til 6 mánuðir. Framlenging eftir 6 mánuði kemur ekki til greina nema viðkomandi hafi skerta starfsorku
- Ef einstaklingi er skipt út á miðju tímabili, skal það gert í samráði við ráðgjafa
- Greinargerð yfir framkvæmd verkefnis skal skila við lok þess til umsjónarmanns verkefnisins á Vinnumálastofnun
Greiðslur
- Greiðsla til fyrirtækis tekur mið af bótarétti einstaklings (sjá dæmi um útreikning neðar)
- Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK
- Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins
- Atvinnurekandi sendir reikninginn til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Kringlunni 1
103 Reykjavík - Gunnar yfirfer reikningana. Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins
- Á reikningnum skal koma fram:
a. Nafn atvinnuleitanda
b. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
c. Bótaréttur einstaklings
d. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við - Afrit launaseðils skal fylgja reikningi
- Reikningar geta verið innheimtir mánaðarlega eða í lok verkefnisins
Athugið að frá 01. janúar 2012 eru atvinnuleysisbætur 167.176
Greiðslur vegna atvinnuleitanda með 100% bótarétt eru kr. 167.176 pr. mánuð + 8% lífeyrissjóðsframlag = 180.550
Dæmi:
-
Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur hálfan mánuð: 83.588 + 8%=90.275.
-
Atvinnuleitandi með 50% bótarétt vinnur hálfan mánuð 41.794 + 8% = 45.137.
- Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur 75% hluta mánaðarins: 167.176x75%+ 8%= 135.412
Frá og með 2. september 2011 telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan ekki af bótarétti atvinnuleitanda. Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.
Verði ekki af áframhaldandi ráðningu þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og skrá sig og skila vottorði vinnuveitanda fyrsta daginn sem hann er í atvinnuleit á ný.
Tengd skjöl
Tengiliður
Ásdís Guðmundsdóttir
asdis.gudmundsdottir@vmst.is
Sími 582 - 4914
Bréfasími 512 - 4920
Vinnumálastofnun á Norðurlandi vestra
Faxatorgi 1, 550 Sauðárkrókur
Greiðslur
Senda skal reikning til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Kringlunni 1
103 Reykjavík




English

