Starfsorka
Markmið
Markmið átaksverkefnisins starfsorku er að auðvelda fyrirtækjum að ráða fólk í atvinnuleit, til að:
- styðja við nýsköpun og þróun í fyrirtækjum
- koma á tengslum milli atvinnuleitenda og fyrirtækja
- styðja við frumkvöðla með hugmyndir um nýsköpun
- styðja við atvinnuleitendur og auðvelda þeim leit að störfum
Forsendur
Forsendur fyrir þáttöku í verkefninu er að:
- um starfandi fyrirtæki sé að ræða og velta síðasta árs sé fimm milljónir eða meira
- eitt eða fleiri stöðugildi séu nú þegar í fyrirtækinu
- veruleg nýsköpun/þróun sé í því verkefni sem atvinnuleitandi er ráðinn til
- atvinnuleitandi sé tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins og eigi rétt á atvinnuleysisbótum
- atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit og á skrá hjá Vinnumálastofnun
- ráðning atvinnuleitandans feli í sér fjölgun starfsmanna hjá fyrirtækinu
- verkefnið raski ekki samkeppni innanlands í viðkomandi starfsgreinum
Samningur
Starfsorka byggir á þríhliða samningi milli Vinnumálastofnunar, fyrirtækis og atvinnuleitanda um ráðningu í störf sem lúta að nýsköpun og þróun og greiðslu atvinnuleysisbóta. Í samningunum samþykkir atvinnuleitandinn að Vinnumálastofnun greiði grunnatvinnuleysisbætur hans ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð beint til fyrirtækisins. Fyrirtækið skuldbindur sig til að ráða atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins við þróun nýrrar viðskiptahugmyndar í allt að sex mánuði og greiðir honum laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Vinnumálastofnun greiðir sem nemur fjárhæð þeirra atvinnuleysisbóta sem atvinnuleitandi á rétt á úr Atvinnuleysistryggingasjóði til fyrirtækisins auk 8% mótframlags í lífeyrissjóð þann tíma.
Verkefnið er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þátttaka í verkefninu er opin fyrirtækjum og einstaklingum með rekstur á öllu landinu. Umsóknir um þátttöku verða afgreiddar vikulega fyrsta mánuðinn.
Umsóknarferli
Á vef Impru á Nýsköpunarmiðstöð er umsóknarblað sem þátttakendur fylla út og senda rafrænt til Impru á Nýsköpunarmiðstöð.
- Mat umsókna
Verkefnisstjóri Impru fer yfir umsóknir og setur í hendur matshóps á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar sem metur hvort viðkomandi umsókn uppfylli þær kröfur sem gerðar eru. Verkefnisstjóri sendir rafrænt svar til umsækjanda þar sem fram kemur hvort verkefnið geti haldið áfram í ferlinu. Vinnumálastofnun fær afrit af svarinu. - Leit að starfsmanni
Uppfylli umsækjandi skilyrði um þátttöku hefur hann samband við Vinnumálastofnun og leitar að starfsmanni sem uppfyllir þær kröfur sem koma fram í umsókninni. Vinnumálastofnun bendir á atvinnuleitendur sem hafa þá menntun, reynslu eða hæfni sem leitað er eftir. - Ráðning
Fyrirtæki finnur starfsmann við hæfi og gerir ráðningarsamning. Fyrirtækið, starfsmaður og Vinnumálastofnun undirrita síðan sérstakan samning þar sem fram kemur að Vinnumálastofnun greiðir atvinnuleysisbætur í ákveðinn tíma til fyrirtækisins. Hámarkstími er tólf mánuðir. - Áfangaskýrsla
Eftir þrjá mánuði skilar fyrirtæki inn skýrslu um gang verkefnisins til Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Verkefnisstjóri Impru fer yfir skýrsluna og ber saman við umsóknina og metur hvort framvinda er í samræmi við það sem áætlað var skv. umsókninni og sendir niðurstöður sínar til Vinnumálastofnunar og fyrirtækis. - Framlenging á samningi
Eftir fimm mánuði getur fyrirtækið sótt um að framlengja samninginn um sex mánuði. Það skilar áfangaskýrslu nr. 2 til Impru. Verkefnisstjóri fer yfir skýrsluna og sendir niðurstöður til Vinnumálastofnunar og fyrirtækis. Sé framgangur verkefnisins í samræmi við áætlun geta fyrirtækið, Vinnumálastofnun og viðkomandi starfsmaður endurnýjað samning þar um skv. lið 3. - Lokaskýrsla
Þegar verkefninu lýkur (eftir sex eða tólf mánuði) skilar fyrirtækið lokaskýrslu um verkefnið, þar sem fram kemur hvort og þá hvernig markmið náðust og hvort viðkomandi starfsmaður hafi verið ráðinn ótímabundið.
Greiðslur
- Greiðsla til fyrirtækis tekur mið af bótarétti einstaklings (sjá dæmi um útreikning neðar)
- Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.
- Atvinnurekandi sendir reikninginn til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Kringlunni 1
103 Reykjavík
-
Gunnar yfirfer reikningana. Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
-
Afrit launaseðils skal fylgja reikningi.
-
Á reikningnum skal koma fram:
a. Nafn atvinnuleitanda
b. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
c. Bótaréttur einstaklings
d. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við -
Þegar reikningur hefur verið yfirfarinn, er hann sendur til fjármálastjóra VMST
Útreikningur - dæmi:
Athugið að frá 01. janúar 2012 eru atvinnuleysisbætur 167.176
Greiðslur vegna atvinnuleitanda með 100% bótarétt eru kr. 167.176 pr. mánuð + 8% lífeyrissjóðsframlag = 180.550
Dæmi:
-
Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur hálfan mánuð: 83.588 + 8%=90.275.
-
Atvinnuleitandi með 50% bótarétt vinnur hálfan mánuð 41.794 + 8% = 45.137.
- Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur 75% hluta mánaðarins: 167.176x75%+ 8%= 135.412
Eftirfylgni
-
Þegar samningstíma er lokið boðar ráðgjafi atvinnuleitanda á sinn fund og fer yfir árangur og reynslu af úrræðinu
-
Ef atvinnuleitandi er á tekjutengdum bótum þegar hann fer á Starfsorkusamning frestast taka tekjutengingar þar til hann sækir aftur um atvinnuleysistryggingar
-
Einstaklingur í Starfsorkusamningi eykur ekki rétt sinn til atvinnuleysisbóta á tímabilinu og samningstími telst hluti af bótatímabili
Sá tími sem starfsendurhæfing á grundvelli starfsendurhæfingarsamnings stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils
Tenglar
Hér er hægt að sækja umsókn um samning vegna frumkvöðlastarfs innan fyrirtækis eða stofnunar hjá Nýsköpunarmiðstöð Umsóknareyðublað hjá Impru/Nýsköpunarmiðstöð
Greiðslur
Senda skal reikning til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnar Richardsson
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Tengiliður
Jakob Þór Einarsson
jakob.einarsson@vmst.is
Sími 515 - 4850
Bréfasími 588- 2587
kringlunni 1, 103 Reykjavík




English

