Starfsþjálfun
Markmið
Markmið samningsins er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að þjálfa sig í þeirri starfsgrein sem fyrirtækið eða stofnunin starfar innan til að auka hæfni sína til slíkra starfa á vinnumarkaði enda sé hann reiðubúinn að ráða sig til framtíðarstarfa innan starfsgreinarinnar.
Skilyrði
Skilyrði samningsins er að ráðning atvinnuleitandans feli í sér aukningu á starfsmannafjölda fyrirtækis eða stofnunar og að hann hafi ekki áður starfað í þeirri starfsgrein sem um er að ræða eða lengri tími en eitt ár er liðinn síðan hann lét af störfum í starfsgreininni.
Samningur
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um ráðningu atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins í starfsþjálfun. Vinnumálastofnun, fyrirtækið eða stofnunin og atvinnuleitandinn skulu undirrita samninginn um samþykki sitt. Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn að Vinnumálastofnun greiði grunnatvinnuleysisbætur hans ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð beint til fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem greiðir honum laun. Fyrirtækið eða stofnunin skal greiða atvinnuleitandanum laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings.
Skilyrði fyrir ráðningu einstaklings á starfsþjálfunarsamning
-
Viðkomandi einstaklingur eigi bótarétt og hafi verið á atvinnuleysisbótum í a.m.k. 1 mánuð.
- Fyrirtækið þarf að vera skráð, sé í öruggum rekstri, þ.e. ekki í rekstrarörðugleikum eða á leið í gjaldþrot.
- Fyrirtækið hafi eins árs rekstur eða meira að baki (sjá kennitölu).
-
Ráðning atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannahaldi fyrirtækis.
-
Samningurinn er gerður til sex mánaða að hámarki og hann má ekki framlengja vegna sama einstaklingsins, nema hann hafi skerta starfsorku og þurfi nauðsynlega lengri tíma
-
Starfsmenn í úrræðinu skulu að jafnaði ekki vera fleiri en 4 hjá sama fyrirtæki eða hlutfallslega fleiri en 25% af heildarstarfsmannafjölda.
- Að jafnaði verði ekki gerðir samningar við þau fyrirtæki sem hafa nýlega verið með 6 mánaða samning við annan einstakling.
Umsóknarferli
- Atvinnurekandi fyllir út og skráir atvinnu rafrænt á heimasíðu þjónustuskrifstofu og hefur því næst samband við starfsfólk þjónustuskrifstofunnar um framhaldið
- Ráðgjafar VMST finna alla jafna einstaklinga í verkefnin. Leitast verði við að miðla til að byrja með atvinnuleitendum með 100% bótarétt
-
Umsókn um starfsþjálfun - Gerður er þríhliða samningur atvinnurekanda, atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar. Allir aðilar þurfa að undirrita hann
-
Samningarnir skulu gerðir til allt að 6 mánaða. Framlenging eftir 6 mánuði kemur ekki til greina nema viðkomandi hafi skerta starfsorku
-
Úrræðið skal vera samfellt í tíma
Greiðslur
-
Greiðsla til fyrirtækis tekur mið af bótarétti einstaklings (sjá dæmi um útreikning neðar)
-
Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.
-
Atvinnurekandi sendir reikninginn til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Kringlunni 1
103 Reykjavík -
Gunnar yfirfer reikningana. Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
-
Afrit launaseðils skal fylgja reikningi
-
Á reikningnum skal koma fram:
a. Nafn atvinnuleitanda
b. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
c. Bótaréttur einstaklings
d. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við -
Þegar reikningur hefur verið yfirfarinn, er hann sendur til fjármálastjóra VMST.
Útreikningur - dæmi:
Athugið að frá 01. janúar 2012 eru atvinnuleysisbætur 167.176
Greiðslur vegna atvinnuleitanda með 100% bótarétt eru kr. 167.176 pr. mánuð + 8% lífeyrissjóðsframlag = 180.550
Dæmi:
-
Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur hálfan mánuð: 83.588 + 8%=90.275.
-
Atvinnuleitandi með 50% bótarétt vinnur hálfan mánuð 41.794 + 8% = 45.137.
- Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur 75% hluta mánaðarins: 167.176x75%+ 8%= 135.412.
Frá og með 2. september 2011 telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan ekki af bótarétti atvinnuleitanda. Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.
Verði ekki af áframhaldandi ráðningu þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og skrá sig og skila vottorði vinnuveitanda fyrsta daginn sem hann er í atvinnuleit á ný.




English

