Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Vottorð vinnuveitanda

Forsíða:

Atvinnurekandi - Vottorð vinnuveitanda

Leiðbeiningar við útfyllingu vottorðs vinnuveitanda


Upplýsingar um starfstímabil og starfshlutfall

Réttur til atvinnuleysisbóta miðast við starfstímabil og starfshlutfall seinustu 12 starfs-mánaða fyrir fyrsta skráðan atvinnuleysisdag. Því þarf að skrá á vottorðið allt að 12 mánaða vinnu á s.l. 36 mánuðum fyrir fyrsta skráða atvinnuleysisdag og skal það aðgreint eftir starfshlutfalli og/eða rofi á greiðslutímabilum ef um slíkt er að ræða. Ath. að orlof skal telja með sem vinnutíma.


Upplýsingar um starfslok

Sex valkostir eru gefnir upp á eyðublaðinu þar sem einn möguleikinn er minnkað starfshlutfall. Einnig er hægt að skrifa hvaða ástæður voru fyrir að viðkomandi lét af störfum ef enginn valkostanna á við eða ef þörf er á viðbótar-skýringum.

Ef launamaður átti ótekið orlof þarf að gefa upp fjölda daga sem voru óteknir.

Ef launamaður fékk greiðslur vegna starfsloka, þarf að gefa upp upphæðina og/eða fjölda mánaða sem viðkomandi var á launum eftir að hann lét af störfum.


Upplýsingar um greiðslur til stéttarfélaga og lífeyrissjóða

Gefa þarf upp til hvaða stéttarfélags viðkomandi greiddi félagsgjöld, sem og lífeyrissjóð og séreignasjóð ef um slíkt var að ræða.


Athugið að allar upplýsingar um starfsíma eru sannreyndar með samkeyrslu við staðgreiðsluskrá skattyfirvalda



Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu