Vinnumálastofnun
Lög um útsenda starfsmenn erlendra fyrirtækja 45/2007
Markmið laganna
Ný lög 45/2007 um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands voru samþykkt á Alþingi. Markmið laganna er að skýra línur og efla eftirlit varðandi gildi íslenskra kjarasamninga og annarra starfskjara á Íslandi um aðbúnað, óháð því hvort fyrirtækið er íslenskt eða erlent. Lögunum er ætlað að tryggja enn frekar að útlendingar sem hingað koma tímabundið á vegum erlendra fyrirtækja starfi hér á landi með löglegum hætti. Lögin taka mið af ákvæðum EES-samningsins og tilskipunum ESB um þjónustuviðskipti, stuðla að jafnri samkeppnisstöðu íslenskra og erlendra fyrirtæki og er ætlað að vinna gegn félagslegum undirboðum.
Fyrirtæki innan EES
Lögin gilda um fyrirtæki með staðfestu í öðru ríki innan EES (sérreglur gilda um Rúmeníu og Búlgaríu til 2009), öðru EFTA-ríki eða Færeyjum, sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands í sambandi við veitingu þjónustu eða undirverktöku. Það er skilyrði að útsendir starfsmenn séu með ríkisborgararétt í einhverju ofangreindra landa eða með atvinnuleyfi (grænt kort) í heimalandi fyrirtækisins.
Upplýsingaskylda
Samkvæmt lögunum er erlenda fyrirtækinu skylt að upplýsa Vinnumálastofnun eigi síðar en átta virkum dögum áður en þjónustan/verkið hefst á Íslandi. Tilkynna skal verkefni sem tekur tíu virka daga eða lengur og starfsmenn sem koma að því. Notendafyrirtæki (fyrirtæki á Íslandi sem notar þjónustu hins erlenda fyrirtækis) ber að sjá til þess að hið erlenda fyrirtæki skrái sig hjá Vinnumálstofnun, ef hið erlenda fyrirtæki vanrækir það ber notandafyrirtæki að afla viðeigandi upplýsinga. Fyrirtæki á sviði bygginga og mannvirkjagerðar (aðalverktaki) ber að afhenda skriflega staðfestingu um að undirverktakar sem starfa á þess vegum hafi skráð sig hjá Vinnumálastofnun.
Staðfesting á skráningu
Erlendu fyrirtækin fá tölvupóst til staðfestingar á skráningu fyrirtækisins. Þegar Vinnumálastofnun hefur fengið nöfn og aðrar uppýsingar um starfsmenn sem fyrirtækið mun senda til Íslands mun það fá sendan lista yfir virka starfsmenn með tölvupósti. Hvort tveggja eru lögleg gögn sem fyrirtækið þarf að sýna notandafyrirtæki/aðalverktaka.
Sérstakur fulltrúi
Erlendum fyrirtækjum með starfsemi á Íslandi í meira en fjórar vikur á tólf mánuðum og sex menn eða fleiri við störf er skylt að hafa sérstakan fulltrúa á Íslandi sem sér um skráningarmál og önnur lögbundin samskipti við íslensk yfirvöld.
Eftirlit og viðurlög
Vinnumálastofnun hefur eftirlit með framkvæmd laganna. Stofnunin getur kallað eftir nánari upplýsingum. Fari fyrirtæki ekki að fyrirmælum Vinnumálastofnunar varðandi lögbundnar upplýsingar eða ljóst þykir að það fari ekki að kjarasamningum getur stofnunin krafist þess að lögregla stöðvi vinnu tímabundið eða loki starfsemi fyrirtækisins hér á landi þar til úrbætur hafa verið gerðar.
Skráning fer fram rafrænt, smellið hér og skráið inn 1. fyrirtækið, 2. Skráning notandafyrirtækis/samnings við notandafyrirtæki. 3. Skráning starfsmanna.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar: agust.thorsteinsson@vmst.is sími 515 4885. Daglegur viðtalstími 8.00-12.00.
Lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda
Lög um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra.
Skattamál
Starfsmenn eru skattskyldir af launatekjum sem þeir vinna sér inn hér á landi. Varðandi greiðslu tryggingagjalds skiptir máli hvort starfsmaður er með vottorð E-101 frá heimalandinu. Sjá nánar í orðsendingu 3/2005 frá Ríkisskattstjóra.
Orðsending frá Ríkisskattstjóra nr 3/2005 um skattamál erlendra starfsmanna
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















