Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Atvinnuleit í öðru aðildarríki

Forsíða:

Eyðublöð - Atvinnuleit í öðru aðildarríki

Atvinnuleit erlendis - vottorð E-303

Ef þú ert atvinnulaus og færð atvinnuleysisbætur getur þú farið í atvinnuleit til Evrópu og haldið dagpeningum þínum. E-303 vottorðið veitir þér rétt til að fá greiddar atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði meðan þú ert að leita þér að vinnu í EES-landi. Aðalskylirði til þess að fá útgefið E-303 vottorð eru að þú þarft að vera alveg atvinnulaus og hafa þegið bætur samfellt í fjórar vikur fyrir brottför og ekki hafa hafnað atvinnutilboði.

Umsóknarfrestur um vottorðið er þrjár vikur fyrir brottför. Gildistími vottorðsins er allt að þrír mánuðir.
Vottorði skal skilað til Vinnumálastofnunar Hafnarhúsi v/Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík.

Leiðbeiningar fyrir þá sem fara í atvinnuleit til útlanda

Umsókn um varðveislu réttar til atvinnuleysisbóta hjá Atvinnuleysistryggingasjóði meðan leitað er atvinnu í öðru EES landi:
Varðveisla réttar til atvinnuleysisbóta – Vottorð E-303

E-303 á ensku - E-303 in english:
Request for E-303 for the preservation of rights to unemployment benefits in the unemployment while searching for employment in another EEA country

 

Atvinna erlendis - vottorð E-301

Ef þú ætlar til starfa í öðru EES-landi er hægt að fá vottað að þú hafir verið atvinnuleysistryggður á Íslandi. Þetta er gert með því að sækja um vottorð E-301 þar sem óskað er staðfestingar á tryggingar- og starfstímabilum aðila sem fer til starfa í öðru EES-landi.

Vottorði skal skilað til Vinnumálastofnunar Hafnarhúsi v/Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Umsókn um vottorð E-301/N-301 til staðfestingar á tryggingar- og starfstímabilum:
Staðfesting á tryggingar- og starfstímabilum - Vottorð E-301

Nauðsynlegt er að vottorð vinnuveitenda fylgi með umsókninni til staðfestingar á starfstíma og starfshlutfalli launþega vegna E-301 umsóknar:
Vottorð vinnuveitanda vegna EES (v/E-301)


E-301 á ensku - E-301 in english:

Request for certificate E-301/N-301 for coordination of social security in the EES countries

E-301 á pólsku - E-301 in polish:
Wniosek o Wydanie Formularza E 301


Afhending eyðublaða

Aðalskrifstofa
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Afgreiðslustími kl. 9:00 til 15:00
Sími 515 - 4800
Bréfasími 511 - 2520


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu