Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

  

Þeir sem eru áhugasamir um atvinnu í Manitobafylki í Kanada eru beðnir um að sækja um á skrifstofu Vinnumálastofnunar að Engjateig 11.

Athugið! Ef starfsgrein þín er ekki að finna á þessum lista getur þú engu að síður leitað eftir lausum störfum í Manitoba. Umsækjendur eru beðnir að koma með ferilskrá á ensku og þýdd prófskírteini þar sem það á við.

(Dæmi um kanadíska ferilskrá er hægt að nálgast hér og hér..)

Í Manitoba vantar fólk í eftirtaldar starfsgreinar:

Hleðslumenn:

Hleðslumaður leggur múrsteina, hellur, steinhellur og önnur sambærileg efni til að reisa og/eða gera við veggi, boga, skorsteina, arna og slíkt í samræmi við teikningar og nánari fyrirmæli. Þeir eru ráðnir af byggingarfyrirtækjum og hleðslu og/eða múrara verktökum. Nánari upplýsingar um hleðslumenn/múrara er að finna hér.

Smiðir:

Smiðir byggja, reisa, setja upp, viðhalda og gera við byggingar og mannvirki, gerð úr við, viðarlíki, léttu stáli og öðrum efnum. Þeir eru ráðnir af byggingafyrirtækjum, verktökum sem og viðhaldsdeildum hinna ýmsu verksmiðja og fyrirtækja. Einnig eru þeir sjálfstætt starfandi. Nánari upplýsingar um starfssvið smiða er að finna hér.

Kokkar og yfirmatsveinar:

Kokkar og yfirmatsveinar sjá um undirbúning og eftirlit með matreiðslu sem og eldamennsku. Nánari upplýsingar um starfssvið kokka og yfirmatsveina er að finna hér.

Forritarar og vefforritarar:

Forritarar sjá um forritun, breytingar, uppfærslu og prófanir á tölvum sem og hugbúnaðaruppsetningar fyrir móðurtölvur, uppbyggingu gagnaskráa og fleira. Vefforitarar forrita, breyta, uppfæra og prófa tölvukóða fyrir vefhugbúnað, tölvuleiki, kvikmyndir og fleira. Nánari upplýsingar um starfssvið forritara og vefforritara er að finna hér.

Myllusmiðir og iðnaðarvélfræðingar:

Myllusmiðir og iðnaðarvélfræðingar setja upp, viðhalda, leita bilunar í og gera við kyrrstæðar /skorðaðar iðnvélar og vélbúnað. Myllusmiðir eru ráðnir af myllusmíðaverktökum. Iðnaðarvélfræðingar eru ráðnir af verksmiðjum í iðnaði, þjónustufyrirtækjum og öðrum samskonar fyrirtækjum. Nánari upplýsingar um starfsvið myllusmiða og iðnaðarvélfræðinga er að finna hér.

Iðnverkamenn:

Iðnverkamenn aðstoða faglærða iðnaðarmenn og vinna á byggingarsvæðum, í grjótnámum og annarskonar námum á yfirborði jarðar. Þeir eru ráðnir af byggingarfyrirtækjum, verktökum ýmisskonar og námustjórnendum. Nánari upplýsingar er að finna hér.

Gagnagrunnagreinendur og umsjónarmenn/stjórnendur gagnagrunna. Sjá nánari starfslýsingu hér.

Rafvirkjar:

Rafvirkjar leggja rafmagn, prófa, leita bilunar og gera við raflagnir, ljósastæði og ýmsan rafrænan stýribúnað tengdum mannvirkjum og öðrum byggingum. Þeir eru ráðnir af verktökum og viðhaldsdeildum hinna ýmsu stofnanna. Einnig geta þeir verið sjálfstætt starfandi. Sjá nánar hér.

Vélvirkjar er annast stórvirkar vinnuvélar:

Vélvirkjar er annast stórvirkarvinnuvélar gera við, leita bilana, aðlaga og og sjá um yfirhalningar og viðhald stærri vinnuvéla, einkum á byggingarsvæðum, við gröft í námum ofl. Sjá nánar hér.

Bílstjórar með meirapróf á stærri ökutæki: Sjá nánar hér.

Starfsfólk í móttöku á hóteli:

Starfsfólk í móttöku á hóteli sjá um bókanir á herbergjapöntunum, veita ýmsar upplýsingar og þjónusta gesti. Einnig sjá þeir um móttöku greiðslna fyrir þjónustu ýmisskonar. Sjá nánar hér.

Ræstitæknar:

Ræstitæknar sjá m.a. um þrif á anddyrum hótela, skrifstofum, hótelherbergjum, spítölum ofl. Sjá nánar hér.

Vélsmiðir og vélvirkjar:

Þeir setja upp og stjórna ýmsum vélum er vinna með málm, plast og önnur efni . Sjá nánar hér.

Nuddarar:

Veita viðskiptavinum sínum hinar ýmsu líkamsmeðferðir við ýmsum kvillum. Sjá nánar hér.

Málarar og veggfóðrarar: Sjá nánar hér.

Múrarar og aðilar með reynslu af uppsetningu gifsveggja. Sjá nánar hér.

Hugbúnaðarverkfræðingar og hugbúnaðarhönnuðir: Sjá nánar hér.

Umsjónar og eftirlistmenn, vélsmiðir og sambærilega menntað fólk:

Umsjónar og eftirlitsmenn vantar til að hafa yfirumsjón með vélsmiðum og öðrum verkamönnum. Sjá nánar hér.

Athugið! Ef starfssvið þitt er ekki að finna á þessum lista getur þú engu að síður leitað eftir lausum störfum í Manitoba. Umsækjendur eru beðnir að koma með ferilskrá á ensku og þýdd prófskírteini þar sem það á við.

(Dæmi um kanadíska ferilskrá er hægt að nálgast hér og hér..)

Á þessari síðu er hægt að finna almennar upplýsingar fyrir innflytjendur í Manitoba: http://www.immigratemanitoba.com/


Almennar upplýsingar um atvinnuleit í Kanada

 

Öflun atvinnuleyfis

Almennar leiðbeiningar varðandi atvinnuleit í Kanada 

 

 

 

 


Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Slóð:

Forsíða » Kanada

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun