Vinnumálastofnun
30.11.2004
Skýrsla um mannaflaþörf og útgáfu atvinnuleyfa
Í nýútkominni skýrslu Vinnumálastofnunar um mannaflaþörf kemur fram að gera má ráð fyrir að gefa þurfi út milli 1.300 og 1.800 atvinnuleyfi næstu 3 ár vegna þeirra framkvæmda sem þegar eru hafnar við uppbyggingu virkjana og stóriðju, flest strax á næsta ári. Bygging álvers á Reyðarfirði og tengdar framkvæmdir eru þar fyrirferðarmestar, ástamt stækkun álvers Norðuráls, bygging virkjana á Hellisheiði og á Reykjanesi og bygging Kárahnjúkavirkjunar og tengdra framkvæmda.
30.11.2004
Gríðarleg fjölgun gjaldþrota og ábyrgðarleysi stjórnenda skýrir útgjaldaaukningu hjá Ábyrgðarsjóði launa
Vinnumálastofnun og stjórn Ábyrgðarsjóðs launa hafa nýverið látið taka saman lögfræðilega álitsgerð um hina miklu aukningu sem hefur orðið á síðustu árum á greiðslum úr Ábyrgðasjóði launa og hvað skýrir hana. Greiðslur úr sjóðnum hafa tvöfaldast frá árinu 2001 til 2002 og 2003 og stefnir í enn meiri aukningu á þessu ári.
Í álitsgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að meginorsök útgjaldaaukningarinnar er gríðarleg fjölgun gjaldþrotaskipta á búum fyrirtækja og fleiri stærri gjaldþrot en áður hefur verið. Ábyrgð stjórnenda fyrirtækja vegur einnig þungt, því bú eru í mörgum tilfellum að koma alltof seint til skipta og mikill meirihluti þrotabúa er eignalaus, þannig að lítið sem ekkert fæst upp í kröfur. Er það m.a. vegna ákveðinna flöskuhálsa varðandi framkvæmd fjárnáma, en Sýslumannsembættið í Reykjavík sætir talsverðri gagnrýni fyrir mikinn seinagang í afgreiðslu fjárnámsbeiðna. Oft á tíðum eru fyrirtæki farin á kennitöluflakk og búin skjóta undan eignum. Í álitinu er einnig komist að þeirri niðurstöðu að breytt viðskiptaumhverfi þar sem lánastofnanir eiga nú orðið svokölluð allsherjarveð í öllum eigum fyrirtækja eigi sinn þátt í að lítið fæst greitt upp í kröfur annarra kröfuhafa.
19.11.2004
ISS Ísland og Landsvirkjun hlutu „Lóð á vogarskálina“
12.11.2004
Atvinnuleysi 2,7% í október
Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 81.459 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.880 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,7% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í október 2004. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í október 2004 er 145.628.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd





























