Vinnumálastofnun
28.9.2004
Ársfundur Vinnumálastofnunar -erindi og fréttir
Ársfundur Vinnumálastofnunar var haldinn að Engjateigi 11 föstudaginn 24. september síðast liðinn, frá kl. 14 til 16.
Mikill áhugi var á fundinum og aðsókn góð, enda á dagskrá áhugaverð erindi um íslenskan vinnumarkað. Fundinn sátu hann um 80 manns víða að úr þjóðfélaginu og er ljóst að atvinnumál eru fólki ofarlega í huga.
27.9.2004
Ráðstefna um aðlögunarhæfni á evrópskum vinnumarkaði
Þann 21. september var í Brussel haldin ráðstefna / seminar um aðlögunarhæfni (adaptability) á evrópskum vinnumarkaði með tilliti til samkeppnishæfni á alþjóðamarkaði og viðbragða við örum þjóðfélags- og tæknibreytingum.
15.9.2004
Ársfundur Vinnumálastofnunar 24. september nk.
Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn í Kiwanishúsinu 2. hæð, Engjateigi 11, Reykjavík, föstudaginn 24. september nk.
Fundurinn stendur frá kl. 14:00 – 16:00.
Öllum er frjáls aðgangur að fundinum.
10.9.2004
Atvinnuleysi í ágústmánuði 2004
Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 98.011 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.452 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,9% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í ágúst 2004.
Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í ágúst 2004 er 153.865.
6.9.2004
Vika símenntunar: Ekki bara hugsa um það!
Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september nk. en hún er nú haldin í fimmta sinn hér á landi. Að þessu sinni er athyglinni beint að ungu fólki undir slagorðinu EKKI BARA HUGSA UM ÞAÐ! Nánari upplýsingar um vikuna er að vinna á vefsíðu vikunnar http://www.mennt.net/simenntun/
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd





























