Vinnumálastofnun
25.4.2006
Atvinnuleysistryggingar í hálfa öld
Þann 24. apríl 2006 voru liðin 50 ár frá fyrsta stjórnarfundi Atvinnuleysistryggingasjóðs. Lög um atvinnuleysistryggingar voru samþykkt 7. apríl 1956 en stjórn sjóðsins kom fyrst saman til fundar 24. apríl 1956.
Í tilefni dagsins hélt stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs 586. fund sinn og til að minnast afmælisins var Jóni Kristjánssyni félagsmálaráðherra og Óskari Hallgrímssyni, sem var varaformaður fyrstu sjóðsstjórnarinnar og sá eini sem eftir lifir af fyrstu stjórnarmönnunum, boðið til fundarins.
12.4.2006
Atvinnuleysi 1,5% í mars 2006
Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 50.256 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.183 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,5% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í mars 2006 er 150.415.
4.4.2006
Takmörkunum á aðgangi vinnuafls frá nýjum aðildarríkjum ESB verði aflétt
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun lagafrumvarp Jóns Kristjánssonar, félagsmálaráðherra, um að aflétt verði takmörkunum á innflutningi vinnuafls frá nýjum aðildarríkjum Evrópusambandsins frá og með 1. maí. Ríkisborgurum viðkomandi ríkja verður þar með heimilt að koma hingað í atvinnuleit og ráða sig í vinnu án atvinnuleyfis en vinnuveitendur verða að tilkynna um ráðningu til Vinnumálastofnunar.
4.4.2006
Skýrsla um stöðu og horfur á vinnumarkaði
Stjórn Vinnumálastofnunar hefur lagt fyrir félagsmálaráðherra skýrslu sem inniheldur upplýsingar um stöður og horfur á vinnumarkaði, yfirlit um vinnumarkaðsaðgerðir og starfsáherslur Vinnumálastofnunar fyrir árið 2006.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd





























