Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

29.11.2007

Starfsmenntaverðlaunin 2007

Starfsmenntaverðlaunin voru afhent í áttunda sinn föstudaginn 23. nóvember síðastliðinn. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en þau hlutu: Icelandair ehf. í flokki fyrirtækja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum flokki fræðsluaðila og Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir í opnum flokki.

22.11.2007

Erlent vinnuafl á Íslandi - þróun undanfarinna ára

Erlent vinnuafl á Íslandi - þróun undanfarinna ára, nefnist fyrirlestur sem Lárus Blöndal, vinnumarkaðsfræðingur og deildarstjóri hjá Hagstofu Íslands heldur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd, föstudaginn 23. nóvember kl. 12.15 – 13.15. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 201. 

16.11.2007

Aukaúthlutun á styrkjum til atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun vekur athygli á að félagsmálaráðherra auglýsir aukaúthlutun á Styrkjum til atvinnumála kvenna árið 2007. Styrkirnir eru ætlaðir konum sem eru með góða viðskiptahugmynd og stefna á að koma á fót sjálfstæðum atvinnurekstri.

12.11.2007

Atvinnuleysi 0,8% í október

Skráð atvinnuleysi í október 2007 var 0,8%, eða það sama og í september s.l. Að meðaltali voru 1.315 manns á atvinnuleysisskrá, sem er 21 færri en í september. Atvinnuleysi er um 20% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,0%. 

12.11.2007

Þriðji morgunverðarfundur 50+

Atvinnurekendur, stjórnendur, rannsakendur, stjórnmálamenn og áhugafólk um íslenskan vinnumarkað athugið!
Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.  Síðasti fundurinn af þremur verður á Grand hótel, Háteigi (salur á 4. hæð) þann 15. nóvember n.k. kl. 8:30-10:00.

8.11.2007

Ársfundur Vinnumálastofnunar

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn föstudaginn 9. nóvember nk á Hótel Nordica, 2. hæð, og hefst kl. 13:00. 

8.11.2007

Hádegisfyrirlestur um vinnuumhverfi á leikskólum

Vinnuumhverfi á leikskólum: Orsakir álags á starfsmenn. Svo nefnist fyrirlestur sem Ágústa Guðmarsdóttir, MS í líf- og læknavísindum heldur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd föstudaginn 9. nóv nóv kl. 12.15.
Fyrirlesturinn verður Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 201.  Fyrirlesturinn er ókeypis og opinn öllu áhugafólki um vinnuvernd.

Staðfesting á atvinnuleitUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarUmsókn um atvinnu og atvinnuleysisbæturÁtaksverkefnið ÞOR - þekking og reynsla, gegn langtímaatvinnuleysi hjá fólki á aldrinum 29 til 70 áraÁtaksverkefnið Ungt fólk til athafna, gegn langtímaatvinnuleysi hjá fólki á aldrinum 18 til 29 áraEuresArbeidsliv in nordenMenntatorgUpplýsingaveita -  Samstarf um mennunarúrræðiVelferðarvaktinEfnahagsvandinn - Fáðu svör island.isNorræn vinnumiðlun

Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun