Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

12.3.2007

Atvinnuleysi 1,3% í febrúarmánuði

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2007 var 1,3% eða að meðaltali 2.037 manns sem eru 60 fleiri en í janúar sl. og jókst um 3% milli mánaða. Atvinnuleysi er töluvert minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,6%, en ef litið er til febrúar 2006 hefur fækkað um 301 í hópi atvinnulausra, eða um 13%.

Atvinnuleysi jókst á höfuðborgarsvæðinu um 6%, en litlar breytingar voru á landsbyggðinni. Atvinnuleysi kvenna mældist 1,7% og karla 1,1%. Atvinnuleysi karla jókst meira en meðal kvenna eða um 5%, en um 1,7% meðal kvenna. Meðal beggja kynja kemur aukningin fram á höfuðborgarsvæðinu. Um 20% atvinnulausra í febrúar var ungt fólk á aldrinum 16-24 ára eða svipað og í janúar sl. Fjöldi þeirra sem hafa verið á skrá í innan við 3 mánuði minnkaði lítilsháttar í febrúar, og fjöldi þeirra sem verið hafa á atvinnuleysisskrá í 3-6 mánuði breytist lítið.  Þeim sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði fjölgar hins vega úr 533 í 599.

Aðeins voru gefin út 20 ný atvinnuleyfi í febrúar til íbúa utan hins Evrópska efnahagssvæðis. Nýskráningar ríkisborgara frá nýju ríkjum ESB voru 401, eða samtals 421. Til samanburðar voru gefin út 701 ný atvinnuleyfi í febrúar 2006, þegar íbúar nýju ríkjanna þurftu atvinnuleyfi til að koma hingað til starfa og því talsverða fækkun að ræða milli ára.

Vísbendingar um atvinnuástandið í mars
Atvinnuástandið breytist yfirleitt lítið frá febrúar til mars og stundum byrjar að draga úr því. Atvinnuleysið minnkaði í 1,5% í mars á síðasta ári, og lækkaði úr 2,8% í febrúar í 2,6% í mars árið 2005.

Lausum störfum í lok febrúar 2007 fjölgaði lítið eitt frá lokum janúar sem bendir til að atvinnuástand muni ekki versna mikið úr þessu. Á móti kemur þó að það fjölgaði um 23 í hópi atvinnulausra frá lokum janúar til loka febrúar.  Í lok febrúar 2006 voru hins vegar 728 laus störf.

Þegar allt er talið er því líklegt er að atvinnuleysið í mars muni lítið breytast og verða á bilinu 1,2%-1,5%

Sjá nánar skýrslu um atvinnuástand í febrúar 2007.


Staðfesting á atvinnuleitUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarUmsókn um atvinnu og atvinnuleysisbæturÁtaksverkefnið ÞOR - þekking og reynsla, gegn langtímaatvinnuleysi hjá fólki á aldrinum 29 til 70 áraÁtaksverkefnið Ungt fólk til athafna, gegn langtímaatvinnuleysi hjá fólki á aldrinum 18 til 29 áraEuresArbeidsliv in nordenMenntatorgUpplýsingaveita -  Samstarf um mennunarúrræðiVelferðarvaktinEfnahagsvandinn - Fáðu svör island.isNorræn vinnumiðlun

Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun