Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

18.1.2010

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.

Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7.febrúar. Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt.

Nýmæli í styrkveitingununum að þessu sinni er að hluta af fjármagninu, sem til ráðstöfunar er, verður eyrnamerkt atvinnulausum konum sem hafa með góðar viðskiptahugmyndir. Skilyrði er að þær hafi sótt um styrk hjá Vinnumálastofnun til að þróa eigin viðskiptahugmynd en það úrræði er eitt af vinnumarkaðsúrræðum stofnunarinnar. 

Sótt er um styrki á vefsvæðinu www.atvinnumalkvenna.is á rafrænum umsóknareyðublöðum sem þar er að finna. Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar má ennfremur finna á heimasíðunni. Sjá einnig auglýsingu um styrkumsóknir hér.

Kynningarfundir fyrir þennan hóp verða haldnir víðsvegar á landinu í fjarfundabúnaði. Á þeim verða styrkmöguleikar atvinnumála kvenna og  þróun eigin viðskiptahugmyndar kynnt auk þess sem stutt námskeið verður um útfyllingu styrkumsóknar. Fulltrúar frá Impru og atvinnuþróunarfélögum munu síðan kynna sína þjónustu.

Fyrsti kynningarfundurinn verður haldinn 21.janúar kl. 14.00-16.00:

Farskólinn, miðstöð símenntunar, Faxatorgi 1, Sauðárkróki
Þekkingarsetur Þingeyinga, Hafnarstétt 3, Húsavík
Þekkingarnet Austurlands, Tjarnarbraut 39, Egilsstöðum
Fræðslunet Suðurlands, Tryggvagötu 26, Selfossi
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Krossmóa 4, Reykjanesbæ
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Skeifunni 8, Reykjavík
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi

Ennfremur verða haldnir fjarfundir á Akureyri, Ísafirði, Höfn í Hornafirði, Akranesi, Patreksfirði og Hólmavík en tímasetning þeirra verður auglýst seinna.

Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins, Ásdís Guðmundsdóttir, í síma 582-4914 eða í netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is


Staðfesting á atvinnuleitUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarUmsókn um atvinnu og atvinnuleysisbæturEuresArbeidsliv in nordenAtvinna í KanadaMenntatorgUpplýsingaveita -  Samstarf um mennunarúrræðiVelferðarvaktinEfnahagsvandinn - Fáðu svör island.isNorræn vinnumiðlun

Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun