Vinnumálastofnun
10.3.2010
Atvinnuleysi 9,3% í febrúar
Skráð atvinnuleysi í febrúar 2010 var 9,3% eða að meðaltali 15.026 manns og eykst atvinnuleysi um 2,2% að meðaltali frá janúar eða um 321 manns. Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,2% eða 13.276 að meðaltali.
Atvinnuleysið er 9,9% á höfuðborgarsvæðinu en 8,2% á landsbyggðinni. Mest er það á Suðurnesjum 15% en minnst á Vestfjörðum 3,6%. Atvinnuleysið er 10,2% meðal karla og 8,1% meðal kvenna.
Sjá nánar skýrslu um stöðu á vinnumarkaði í febrúar 2010.
Fjöldi atvinnulausra í lok mánaðar
Alls voru 16.574 atvinnulausir í lok febrúar. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 13.528, af þeim voru 2.196 í einhvers konar úrræðum á vegum Vinnumálastofnunar, auk þess sem mikill fjöldi fer í ráðgjafarviðtöl og á kynningarfundi.
Fjölgun atvinnulausra í lok febrúar mánaðar frá lokum janúar nam 192, en 187 fleiri karlar voru á skrá og 5 fleiri konur. Á landsbyggðinni fækkaði um 37 en fjölgaði um 229 á höfuðborgarsvæðinu.
Horfur á vinnumarkaði í mars
Oft er lítil breyting á atvinnuástandi frá febrúar til mars. Í fyrra var undantekning þar á en þá var enn talsverð aukning á atvinnuleysi eftir efnahagshrunið haustið 2008. Þannig jókst atvinnuleysi um 9,6% frá febrúar til mars á árinu 2009.
Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í mars breytist lítið og verði á bilinu 9,1%-9,5%. Í fyrra var atvinnuleysið 8,9% í mars.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd




























