Vinnumálastofnun
18.3.2010
Vinnumálastofnun semur við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands
Samningurinn tekur til ungmenna á aldrinum 18 - 24 ára sem ery tryggð innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Miðað er við að hver sjálfboðaliði sinni verkefnum að lágmarki 15 stundir á viku. Ráðnir verða allt að fjórir verkefnisstjórar til að annast fræðslu fyrir sjálfboðaliðanna, aðstoða við val á verkefnum og hafa eftirlit með þáttöku og ástundun.
Um 2.000 ungmenni hafa þegar verið virkjuð í fjölbreyttum úrræðum á þessu ári
Á þessu ári hefur Vinnumálastofnun tryggt um 2.000 ungmennum fjölbreytt náms- og starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá símenntunar- og fræðslumiðstöðvum, í framhaldsskólum í sjálfboðaliðastörfum hjá Rauða krossi Íslands og nú hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Alls er ráðgert að koma á fót 2.200 úrræðum af þessu tagi á árinu.
Nýlega var opnuð miðstöð átaksins Ungt fólk til athafna við Suðurlandsbraut þar sem ráðgjafar Vinnumálastofnunar taka á móti ungum atvinnuleitendum og kynna þeim þau fjölmörgu vinnumarkaðsúrræði sem nú standa til boða. Þegar hefur verið tekið á móti fjölda ungmenna sem ýmist eru að hefja þátttöku í fjölbreyttum náms- og virkniúrræðum þessa dagana eða eru þegar byrjuð.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd




























