Vinnumálastofnun
Uppfært 19. nóv. 2009.
Í töflunni eru allir sem skráðir hafa verið í daglegan gagnagrunn um atvinnulausa/fólk í atvinnuleit. Gera verður ráð fyrir að þar af séu nálægt 1.000 manns sem ekki eru í atvinnuleit vegna breyttra aðstæðna eftir að þeir skráðu sig, en upplýsingar um slíkt berast Vinnumálastofnun yfirleitt ekki fyrr en um eða upp úr mánaðarmótum.
Þá verður að hafa í huga að sá hópur sem ekki er að fullu atvinnulaus telur nú um 2.500 manns, þ.e. þeir sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi.
Þetta ber að hafa í huga vilji menn áætla atvinnuleysi út frá þeim fjöldatölum sem fram koma í töflunni. Rétt er því að lækka fjöldatöluna í töflunni um 5-7% áður en deilt er í með áætluðum fjölda einstaklinga á vinnumarkaði, en gera má ráð fyrir að sá fjöldi sé nú 177-180.000 manns. Þannig samsvara þeir ríflega 15.600 manns sem nú eru í grunninum um 8,2% atvinnuleysi (15.600 * 0,94 / 178.000) ef við lækkum fjöldann um 6% og deilum með 178.000. Erfitt er þó að áætla þessar stærðir nákvæmlega en þarna er um ákveðna nálgun að ræða.
Sveiflur í fjöldatölum – ástæðurÁ tímabilinu 20.-25. hvers mánaðar ber öllum, sem eru á skrá, að staðfesta atvinnuleit rafrænt á heimasíðu VMST eða með öðrum hætti s.s. símleiðis. Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit með þessum hætti hafa nú frest til 3. næsta mánaðar til að staðfesta atvinnuleitina en greiðsla atvinnuleysisbóta frestast fyrir vikið.
Þeir sem ekki staðfesta atvinnuleit eru afskráðir eftir 25. hvers mánaðar en margir skrá sig aftur næstu daga og allt til 3ja næsta mánaðar, því margir hafa gleymt að staðfesta atvinnuleit og gefst þeim kostur á að viðhalda skráningu sinni geti þeir gefið viðunandi skýringar. Því fækkar skráðum atvinnulausum í daglegum gagnagrunni um nálægt 10% fyrst eftir 25. en fjölgar aftur nokkuð hratt í kjölfarið.
Upp úr mánaðarmótum er skráin jafnframt yfirfarin með tilliti til greiðslu atvinnuleysisbóta og kemur þá oft í ljós að á skránni hafa verið eintaklingar sem ekki hafa verið í raunverulegri atvinnuleit, hafa hafnað atvinnu eða úrræðum o.fl. sem gerir að verkum að þeir eru felldir af skránni mánuðinn á undan sem getur þýtt einhverja lækkun talna á heimasíðu eða minni nettófjölgun.
Mánaðarlegur tölfræðigrunnurÍ kring um 7. hvers mánaðar, þegar gögn fyrri mánaðar hafa verið yfirfarin og leiðrétt með tilliti til afskráninga og endurskráninga, eru gögnin færð í sérstakan grunn sem inniheldur mánaðarlegar upplýsingar um atvinnuleysi og er nýttur í allri tölfræðilegri greiningu stofnunarinnar og mánaðarlegar tölur í skýrslum og í gagnasafni á heimasíðu byggja á.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















