Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Vinnumálastofnun

Forsíða:

Heim

Auglýsing

Staðfesting á atvinnuleit
ÞOR - þekking og reynsla
Ungf fólk til athafna
Hvað þarftu að vita?
Upplýsingar um atvinnuleit erlendis
Atvinna með stuðningi

15.5.2012

Skráð atvinnuleysi var 6,5% í apríl

Skráð atvinnuleysi í apríl var 6,5% en að meðaltali voru 10.837 atvinnulausir í apríl og fækkaði atvinnulausum um 620 að meðaltali frá mars eða um 0,6 prósentustig.

Hjá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar eru 203 laus störf í 106 starfsauglýsingum. Ný störf í dag eru 6.

21.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Leiðbeinendur - Vinnandi vegur

21.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Bókari - Vinnandi vegur

21.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Matráður - Borgarbyggð GSG-120521-1

21.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Verkefnastjóri -Vinnandi vegur

21.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Vélavarsla- Vinnandi vegur

21.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Spennandi störf á Laugarvatni - Vinnandi vegur

18.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Netsamskipti ehf - þjónustufulltrúi

18.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Starfsmaður í þjónustu og eftirlit á slökkvitækjum

18.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Skrifstofustjóri - hlutastarf

18.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Yfirþerna

18.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Hárgreiðslusveinn - Vinnandi vegur

18.5.2012 - Höfuðborgarsvæðið

Hársnyrtisveinn / meistari

Af hverju fæ ég svona lítið útborgað?

  • Gleymdir þú að staðfesta atvinnuleit milli 20.-25.? Þeir sem staðfesta frá 26. - 3. næsta mánaðar fá greitt 5 virkum dögum eftir fyrstu útborgun. Þeir sem staðfesta eftir 3. dag mánaðar fá greitt næstu mánaðarmót á eftir.
  • Er búið að afgreiða umsóknina þína? Afgreiðsla umsókna getur tekið mismunandi langan tíma. Stundum vantar gögn og þá þarf að óska eftir þeim o.s.frv. og ef þau berast ekki fyrir 20. hvers mánaðar þá er ekki örugg að þú fáir greitt um mánaðarmótin þar á eftir.
  • Sóttir þú um innan greiðslutímabilsins sem er verið að greiða núna? Greiðslutímabil atvinnuleysisbóta er frá 20. hvers mánaðar til 19. næsta mánaðar.
  • Atvinnuleysisbætur eru alltaf greiddar út 1. virka dag mánaðarins. Ef 1. dagur mánaðarins er á laugardegi þá eru atvinnuleysisbæturnar greiddar út á mánudeginum þar á eftir.
  • Áttir þú ótekið orlof sem þú ráðstafaðir ekki? Orlof frá fyrra tímabili verður þú að klára áður en þú byrjar á atvinnuleysisbótum. Orlof sem þú hefur áunnið þér á nýju orlofstímabili getur þú ráðstafað á næsta orlofstímabili. Orlofstímabilið er frá 1. maí -15. september ár hvert. Orlofsdagar sem þú vinnur þér fyrir 1. maí á hverju ári á að nota á næsta orlofstímabili (sem hefst þá 1. maí).


Á ég rétt á tekjutengingu?

  • Umsækjandi um atvinnuleysisbætur getur fengið tekjutengingu einu sinni í upphafi bótatímabils (36 mánuðir) í allt að 3 mánuði.
  • Grunnatvinnuleysisbætur eru greiddar fyrstu 2 vikurnar og svo tekur tekjutengingin við í næstu 3 mánuðina.
  • Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði miðast við tryggingahlutfall hins tryggða en nema þó aldrei hærri fjárhæð en 263.548 kr á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu.
  • Tekjutengdar atvinnuleysisbætur launamanna nema 70% af meðaltali heildarlauna og er miðað við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus.
  • Tekjutengdar atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi einstaklinga eru 70% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tekjuárið á undan því ári sem umsækjandi varð atvinnulaus.
  • Sá sem sætir biðtíma eftir atvinnuleysisbótum á ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum


Hvað eru atvinnuleysisbætur háar?

Eftirfarandi fjárhæðir gilda frá 1. janúar 2012:

Upphæð grunnatvinnuleysisbóta reiknast í hlutfalli við bótarétt:

  • Atvinnuleysisbætur eru 167.176 kr. á mánuði miðað við 100% bótarétt.
  • Atvinnuleysisbætur eru 125.382 kr. á mánuði miðað við 75% bótarétt.
  • Atvinnuleysisbætur eru 83.588 kr. á mánuði miðað við 50% bótarétt.
  • Atvinnuleysisbætur eru 41.794 kr. á mánuði miðað við 25% bótarétt (lágmarksbótaréttur).

Vegna framfærsluskyldu barna yngri en 18 ára eru greiddar 6.687 kr. á mánuði með hverju barni (4% af óskertum grunnatvinnuleysisbótum).

Tekjutenging

Grunnatvinnuleysisbætur eru greiddar samtals í hálfan mánuð frá fyrstu skráningu áður en tekjutenging atvinnuleysisbóta tekur gildi.

  • Hámark tekjutengdra atvinnuleysisbóta er 263.548 kr. á mánuði.
  • Útreikningur tekjuteningar miðast við:
    Launamenn: Tekjutenging atvinnuleysisbóta nemur 70% af meðaltali heildarlauna og er miðað við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus.
    Sjálfstætt starfandi: Tekjutenging atvinnuleysisbóta nemur 70% af meðaltali heildarlauna og skal þá miða við tekjuárið á undan því ári sem umsækjandi varð atvinnulaus.
    Bótarétt umsækjanda: Upphæð tekjutengingar miðast einnig við bótarétt umsækjanda sbr. reiknist umsækjandi með hámarkstekjutengingu en 50% bótarétt þá verða hámarksatvinnuleysisbætur 50% af 263.548 kr. eða 131.774 kr.
  • Réttur til tekjutengingar atvinnuleysisbóta gildir í 3 mánuði samtals frá upphafi bótatímabils ef skilyrði um tekjutengingu eru uppfyllt.
  • Sá sem sætir biðtíma eftir atvinnuleysisbótum á ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum.
  • Umsækjandi á aðeins einu sinni rétt á hverju bótatímabili á tekjutengdum atvinnuleysisbótum og þá í upphafi tímabilsins.

 

Hvað skerðir atvinnuleysisbætur?

  • Tekjur af hlutastarfi
  • Tekjur af tilfallandi vinnu
  • Elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun
  • Elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum
  • Fjármagnstekjur
  • Vaxtabætur eru ekki fjármagnstekjur heldur skattaafsláttur og skerða því hvorki greiðslur atvinnuleysistrygginga né almannatrygginga
  • Frítekjumark er 59.047 krónur á mánuði



Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu