Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Erlendar vinnumiðlanir

Forsíða:

Störf í boði - Erlendar vinnumiðlanir

Atvinnuleit í Evrópu með E303

Ef þú er ert atvinnulaus og færð atvinnuleysisbætur getur þú farið í atvinnuleit til Evrópu og haldið dagpeningum þínum.  E-303 vottorðið veitir þér rétt til að fá greiddar atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði meðan þú ert að leita þér að vinnu í EES ríki.

Aðalskilyrði til þess að fá útgefið E-303 vottorð eru að þú þarft að vera alveg atvinnulaus og hafa þegið bætur samfellt í fjórar vikur fyrir brottför og ekki hafnað atvinnutilboði.

Staðfesting á starfstíma og starfshlutfalli með E301

Ef þú ætlar í atvinnuleit í öðru EES-landi er hægt að fá vottað að þú hafir verið atvinnuleysistryggður á Íslandi.  Þetta er gert með því að sækja um E-301 vottorð með því að fylla út eyðublaðið E-301 og skila því til Vinnumálastofnunar/ Atvinnuleysistryggingasjóðs ásamt vottorði frá þeim vinnuvinnuveitendum sem þú hefur verið hjá s.l. 3 ár Þetta er hægt hvort sem einstaklingur  á rétt á atvinnuleysisbótum hér á landi eða ekki. 

Ef starfað hefur verið í EES-landi er einnig ágætt að verða sér út um E-301 vottorð í því EES-landi sem starfað hefur verið fyrir heimkomu.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu