Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Vinnumiðlun Vinnumálastofnunar

Forsíða:

Störf í boði - Vinnumiðlun Vinnumálastofnunar

Atvinnuleitendur

Á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar geta atvinnuleitendur fengið fjölþætta aðstoð við atvinnuleit endurgjaldslaust. Aðstoðin felst m.a. í upplýsingagjöf um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur ásamt því að ráðgjafar veita upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval og hvernig er að haga atvinnuleitinni.

Til Vinnumálastofnunar berst jafnframt fjöldi óska um starfsmenn til ýmissa starfa og geta atvinnuleitendur fengið upplýsingar um laus störf á sínu svæði sem á landinu öllu. 

Þjónustuskrifstofurnar hafa jafnframt milligöngu um að ráða fólk frá öðrum umdæmum ef óskað er.

Einnig má benda á Eures - Evrópska vinnumiðlun, sem staðsett er á þjónustuskrifstofu höfuðborgarsvæðisins, fyrir þá sem hyggjast leita að starfi eða auglýsa starf á Evrópska Efnahagssvæðinu.


Atvinnurekendur

Atvinnurekendur geta haft samband við þjónustuskrifstofu í sínu umdæmi og óskað eftir því að hún hafi milligöngu um að útvega starfsfólk. Geti þjónustuskrifstofa ekki útvegað atvinnurekanda starfsmann strax er starf skráð og auglýst sem atvinnutilboð þar til ráðið hefur verið í starfið eða atvinnurekandi óskar ekki eftir frekari þjónustu. 

Atvinnurekandi getur einnig snúið sér til þjónustuskrifstofu og óskað eftir upplýsingum um framboð á vinnuafli í hlutaðeigandi starfsgrein, bæði í því umdæmi sem og annars staðar á landinu.

 

Um vinnumiðlun

Lög um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, tóku gildi 1. júlí 2006 en markmið þeirra laga er að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.  Lögin kveða á um vinnumarkaðsaðgerðir af hálfu hins opinbera sem eiga að stuðla að því að markmiði laganna sé náð ásamt því að sjá atvinnulífinu fyrir hæfu starfsfólki.  Vinnumálastofnun, sem heyrir undir félagsmálaráðherra, fer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu en landið er eitt atvinnusvæði og þjónustuskrifstofur starfa á ákveðnum svæðum.  Félagsmálaráðherra skipar ráðgjafanefnd á hverju svæði, svæðisráð, sem skal fylgjast með framvindu atvinnumála þar og gera tillögur um vinnumarkaðsaðgerðir.  Í lögunum er jafnframt kveðið á um réttindi og skyldur þeirra sem leita eftir atvinnu og atvinnurekenda sem leita eftir vinnuafli.



Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu