Vinnumálastofnun Höfuðborgarsvæðinu
26.1.2010
Völundarverk auglýsir eftir þátttakendum
Völundarverk - Reykjavík auglýsir er eftir þátttakendum í næsta verkefni sem hefst 22. febrúar nk. Þátttakendur munu sækja fjögurra vikna námskeið um viðhald og viðgerðir á gömlum húsum. Bóklegur hluti þess er haldinn á Árbæjarsafni og verklegur hluti á verkstað. Þátttakendur starfa síðan tímabundið (3-6 mánuði) við verkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Þátttakendur munu fá greidd taxtalaun vegna tímabundinnar ráðningar skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags þegar vinna hefst að loknu námskeiði.
Skilyrði fyrir þátttöku eru:
- Sveinspróf í húsasmíði
- Fullur réttur á bótum og námskeiðsstyrk hjá Vinnumálastofnun
- Áhugi á viðhaldi og viðgerðum á gömlum húsum
- Lögheimili í Reykjavík
Nemar sem vantar 6 mánuði eða minna upp á að ljúka vinnustaðanámi geta einnig sótt um þátttöku.
Með umsóknum skal fylgja
- Afrit af sveinsbréfi eða prófskírteinum
- Náms- og starfsferilsskrá þar sem tilgreind eru þau verkefni sem umsækjandi hefur unnið að við viðhald og viðgerðir gamalla húsa ásamt upplýsingum um fyrri vinnuveitendur sem hafa má samband við
Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR fræðsluseturs, Skúlatúni 2 eigi síðar en 1. febrúar 2010. Umsóknareyðublöð fást þar og á heimasíðu Iðunnar www.idan.is
Völundarverk - Reykjavík er átaksverkefni sem felst í því að gefa atvinnuleitendum tækifæri til að handverk og verklag í tengslum við viðhald og viðgerðir á gömlum húsum í Reykjavík. Að verkefninu standa Reykjavíkurborg, Vinnumálastofnun, Iðan fræðslusetur, Húsfriðunarnefnd og Minjasafn Reykjavíkur.
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun
höfuðborgarsvæðinu
Engjateigur 11
105 Reykjavík
Sími 515-4850
Fax 588-2587
Netfang
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00,
nema föstudaga
frá kl. 09:00 - 12:00
Ungt fólk til athafna
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 512-4730
Fax 578-7910
ungir@vmst.is
Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar
Strandgata 4
220 Hafnarfjörður
Sími 585-5565
laufeyb@hafnarfjordur.is
gaui@hafnarfjordur.is
Opið virka daga frá
kl 9:00 - 15:00,
nema föstudaga
til kl. 12:00
Atvinnumiðstöð Kópavogs
Fannborg 2
200 Kópavogur
Gerða Björg Hafsteinsdóttir
Sími 570- 1541
gerdahafsteins@kopavogur.is
Þorsteinn Ingimarsson
Sími 570-1542
thorsteinningimars@kopavogur.is
Mynd

























