Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun Höfuðborgarsvæðinu

Á Engateig 11 er opið alla virka daga frá kl. 09:00 - 15:00  nema föstudaga frá 09:00 - 12:00.


Þjónusta Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins

Vinnumiðlun

Á hverjum degi berast til vinnumiðlunarinnar óskir um starfsmenn til ýmissa starfa.  Á heimasíðu okkar Vinnumalastofnun.is og á upplýsingatöflu og í Starfavísi er að finna lista yfir þau störf sem vinnumiðlarar hafa undir höndum hverju sinni. Atvinnuleitendur þurfa sjálfir að hafa samband við vinnumiðlara til að fá nánari upplýsingar og til að komast í viðtal til vinnuveitenda.

EES-vinnumiðlun
Atvinnuleitendur sem hafa áhuga á að fara í atvinnuleit til EES-landa geta sótt um leyfi hjá Atvinnuleysistryggingasjóði í allt að þrjá mánuði til að skrá sig í viðkomandi landi. Sækja þarf um leyfið með þriggja vikna fyrirvara. Hjá EES-vinnumiðlun fást upplýsingar um störf í boði á evrópska efnahagssvæðinu sem og upplýsingar um lífs- og atvinnuskilyrði í löndunum. Evróráðgjafar eru staðsettir á Engjateig 11, neðri hæð.

Atvinnudeild fatlaðra
Hjá vinnumiðluninni er starfrækt sérstök atvinnumiðlun fyrir einstaklinga með skerta starfsorku. Starfsmenn deildarinnar annast bæði umsóknir um störf á almennum vinnumarkaði og vernduðum vinnustöðum. Einnig veita þeir upplýsingar um starfsendurhæfingu.

Ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur
Náms- og starfsráðgjafar hafa umsjón með starfsleitaráætlunum og þeim úrræðum sem bjóðast.  Þeir veita einnig upplýsingar um námsleiðir í skólakerfinu og helstu aðferðir sem notaðar eru í atvinnuleit.

Atvinnuleit úti á landi
Þeir sem ætla út á land í atvinnuleit geta fengið tímabundið skriflegt leyfi til að skrá sig hjá annarri vinnumiðlun.  Mikilvægt er að atvinnuleitendur verði sér út um þetta leyfi áður en lagt er af stað.

Greiðsla lækniskostnaðar
Einstaklingur sem hefur verið atvinnulaus í samfellt sex mánuði eða lengur (óslitin skráning), hefur staðfestingu Atvinnuleysistryggingasjóðs þar um og er ekki í neinni vinnu, á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og lífeyrisþegar njóta.  Staðfestinguna má fá hjá svæðisvinnumiðlun en hana skal endurnýja á þriggja mánaða fresti.

Úrræði fyrir atvinnuleitendur
Varanleg úrræði sem boðið er upp á eru , námskeið í atvinnuleit, starfsþjálfun, starfskynning og reynsluráðning. Einnig styrkir svæðisvinnumiðlun einstaklinga fjárhagslega á ýmis námskeið. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að námskeiðið breyti stöðu atvinnuleitenda á almennum vinnumarkaði.


Samskipti

Vinnumálastofnun
höfuðborgarsvæðinu

Engjateigur 11
105 Reykjavík
Sími 515-4850
Fax 588-2587
Netfang

Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00,
nema föstudaga
frá kl. 09:00 - 12:00

Ungt fólk til athafna
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 512-4730
Fax 578-7910
ungir@vmst.is


Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar
Strandgata 4
220 Hafnarfjörður
Sími 585-5565
laufeyb@hafnarfjordur.is
gaui@hafnarfjordur.is

Opið virka daga frá
kl 9:00 - 15:00,
nema föstudaga
til kl. 12:00

Atvinnumiðstöð Kópavogs
Fannborg 2
200 Kópavogur
Gerða Björg Hafsteinsdóttir
Sími 570- 1541
gerdahafsteins@kopavogur.is
Þorsteinn Ingimarsson
Sími 570-1542
thorsteinningimars@kopavogur.is

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun Höfuðborgarsvæðinu