Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun Höfuðborgarsvæðinu

Vinnumiðlun

Á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar geta atvinnuleitendur fengið fjölþætta aðstoð við atvinnuleit endurgjaldslaust. Aðstoðin felst m.a. í upplýsingagjöf um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur ásamt því að ráðgjafar veita upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval og hvernig atvinnuleit sé best háttað. Til Vinnumálastofnunar berst jafnframt fjöldi óska um starfsmenn til ýmissa starfa og geta atvinnuleitendur fengið upplýsingar um laus störf á sínu svæði sem á landinu öllu. 

Þjónustuskrifstofurnar hafa jafnframt milligöngu um að ráða fólk frá öðrum umdæmum ef óskað er.

Einnig má benda á EES-vinnumiðlun, sem staðsett er á þjónustuskrifstofu höfuðborgarsvæðisins, fyrir þá sem hyggjast leita að starfi eða auglýsa starf á Evrópska Efnahagssvæðinu (sjá   Störf erlendis ).

Atvinnurekendur geta haft samband við þjónustuskrifstofu í sínu umdæmi og óskað eftir því að hún hafi milligöngu um að útvega starfsfólk. Geti hún ekki útvegað atvinnurekanda starfsmann strax er verkbeiðni skráð sem atvinnutilboð þar til ráðið hefur verið í starfið eða atvinnurekandi óskar ekki eftir frekari þjónustu. 

Atvinnurekandi getur einnig snúið sér til þjónustuskrifstofu og óskað eftir upplýsingum um framboð á vinnuafli í hlutaðeigandi starfsgrein, bæði í því umdæmi sem og annars staðar á landinu.

 

Lög um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, tóku gildi 1. júlí 2006 en markmið þeirra laga er að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.  Lögin kveða á um vinnumarkaðsaðgerðir af hálfu hins opinbera sem eiga að stuðla að því að markmiði laganna sé náð ásamt því að sjá atvinnulífinu fyrir hæfu starfsfólki.  Vinnumálastofnun, sem heyrir undir félagsmálaráðherra, fer með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu en landið er eitt atvinnusvæði og svæðisvinnumiðlanir starfa á ákveðnum svæðum.  Félagsmálaráðherra skipar ráðgjafanefnd á hverju svæði, svæðisráð, sem skal fylgjast með framvindu atvinnumála þar og gera tillögur um vinnumarkaðsaðgerðir.  Í lögunum er jafnframt kveðið á um réttindi og skyldur þeirra sem leita eftir atvinnu og atvinnurekenda sem leita eftir vinnuafli.


Samskipti

Vinnumálastofnun
höfuðborgarsvæðinu

Engjateigur 11
105 Reykjavík
Sími 515-4850
Fax 588-2587
Netfang

Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00,
nema föstudaga
frá kl. 09:00 - 12:00

Ungt fólk til athafna
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 512-4730
Fax 578-7910
ungir@vmst.is


Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar
Strandgata 4
220 Hafnarfjörður
Sími 585-5565
laufeyb@hafnarfjordur.is
gaui@hafnarfjordur.is

Opið virka daga frá
kl 9:00 - 15:00,
nema föstudaga
til kl. 12:00

Atvinnumiðstöð Kópavogs
Fannborg 2
200 Kópavogur
Gerða Björg Hafsteinsdóttir
Sími 570- 1541
gerdahafsteins@kopavogur.is
Þorsteinn Ingimarsson
Sími 570-1542
thorsteinningimars@kopavogur.is

 


Slóð:

Vinnumiðlun

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun Höfuðborgarsvæðinu