Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra

20.11.2009

Greiðslur atvinnuleysistrygginga í desember

Vegna fyrirspurna um það hvernig greiðslum atvinnuleysistrygginga verður háttað í desember vill Greiðslustofa kynna eftirfarandi skipulag.

Þann 1. desember fer fram útborgun fyrir tímabilið 20. okt. – 19. nóv. 2009.

  • Allir umsækjendur fá þá greitt sem eru með samþykkta umsókn og hafa staðfest sig á staðfestingartíma.
  • Nýjar umsóknir sem hafa borist Greiðslustofu fyrir 16. nóv. verður leitast við að afgreiða og koma í greiðslur á tímabilinu 01. des – 07. des.
  • Umsóknir sem hafa borist Greiðslustofu fyrir 19. nóv. verða afgreiddar og fara í greiðslu þann 11. desember.

Útborgun um áramót fer fram 31. desember og verður þá greitt fyrir tímabilið 20. nóv - 19. des.

Vakin er athygli á því að afgreiðsla umsóknar tekur að jafnaði 3 - 6 vikur frá því rafræn umsókn er skráð og þar til umsókn er endanlega komin til greiðslu. Lengd tímabilsins ræðst að nokkru leiti af því í hvaða tíma mánaðar umsókn er skráð. Að auki skal bent á að afgreiðsla umsóknar getur tekið lengri tíma þegar afla þarf frekari upplýsinga en þeirra sem fylgja umsókninni.


Upplýsingar um atvinnuleysistryggingarAtvinnumál kvennaÞýðingar á pólsku

Samskipti

Vinnumálastofnun á
Norðurlandi eystra

Skipagata 14
Akureyri
Opið mánud. - fimmtud.
frá 9:00 - 15:00 og föstud.
frá 9:00 - 12:00

Sími 460-5100
Fax  462-2100

Garðarsbraut 26
Húsavík
Opið mánud. miðv.d. og föstud.
frá 10 - 14

Sími 464-1111
Fax 464-1183

Netfang:
nordurland.eystra@vmst.is

 


Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra