Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra
Akureyri - Skipagötu 14, 2 hæð
Skrifstofan á Akureyri er opin á mánud. - fimmtud. kl. 09:00-15:00.
og á föstudögum frá kl 09:00-1200
Símatímar ráðgjafa eru frá kl. 8:30-9:30 og kl. 13:00-14:00
Sími 460-5100 - faxnr. 462-2100
nordurland.eystra@vmst.is
Húsavík - Garðarsbraut 26
Skrifstofan er opin mánud., miðvikud., og föstud. kl. 10:00-14:00
Sími 464-1111 - faxnr. 464-1183
nordurland.eystra@vmst.is
Dagsetningar vegna staðfestingar á atvinnuleit
Þeir atvinnuleitendur sem fá greiddar atvinnuleysisbætur þurfa að staðfesta atvinnuleit sína í hverjum mánuði á tímabilinu 20. – 25. hvers mánaðar. Hægt er að staðfesta atvinnuleit með því að mæta á skráningarstað, hringja til Vinnumálastofnunar Vesturlandi (hét áður Svæðisvinnumiðlun Vesturlands) í síma 430-5300, senda tölvupóst á netfangið svm.vesturlands@svm.is eða með því að skrá sig á vefsíðu slóðin er http://www.vinnumalastofnun.is/
Hægra megin á síðunni þarf að velja mynd af dagatali:
Atvinnuleitendur geta fengið fjölþætta aðstoð við atvinnuleit endurgjaldslaust. Aðstoðin felst m.a. í upplýsingagjöf um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur ásamt því að ráðgjafar veita upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval og hvernig atvinnuleit sé best háttað. Til Vinnumálastofnunar berst jafnframt fjöldi óska um starfsmenn til ýmissa starfa og geta atvinnuleitendur fengið upplýsingar um laus störf á sínu svæði sem á landinu öllu.
Þjónusta Svæðisvinnumiðlunar
Almenn vinnumiðlun
Á hverjum degi berast óskir um starfsmenn til ýmissa starfa. Tómas Hermannsson, atvinnuleitarfulltrúi, hefur milligöngu um viðtöl og gefur upplýsingar um laus störf. Atvinnuleitendur sem hafa áhuga á auglýstum störfum þurfa sjálfir að hafa samband við vinnumiðlun. Einnig eru atvinnuleitendur sérstaklega boðaðir í viðtöl vegna lausra starfa.
Vakin er athygli á upplýsingatöflu í anddyri Vinnumálastofnunar. Þar er að finna upplýsingar um laus störf.
Laus störf eru einnig auglýst á heimasíðu Vinnumálastofnunar, www.vinnumalastofnun.is
Þjónusta við atvinnurekendur
Atvinnurekendur geta haft samband við þjónustuskrifstofu í sínu umdæmi og óskað eftir því að hún hafi milligöngu um að útvega starfsfólk. Fjöldi hæfra umsækjenda eru á skrá, fólk með mismunandi menntun, reynslu og bakgrunn.
Geti hún ekki útvegað atvinnurekanda starfsmann strax er verkbeiðni skráð sem atvinnutilboð þar til ráðið hefur verið í starfið eða atvinnurekandi óskar ekki eftir frekari þjónustu.
Atvinnurekendur geta skráð laus störf inn á heimasíðu Vinnumálastofnunar eða á vefsíðu EURES vinnumiðlunar, www.eures.is
EES-vinnumiðlun
Atvinnuleitendur sem hafa áhuga á að fara í atvinnuleit til EES-landa geta sótt um leyfi hjá Svæðisvinnumiðlun til að skrá sig í viðkomandi landi. Sækja þarf um leyfið með fjögurra vikna fyrirvara.
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands eystra aðstoðar atvinnuleitendur við upplýsingar um störf á Evrópska efnahagssvæðinu og þær reglur sem þar gilda. Helena Þ. Karlsdóttir veitir upplýsingar um EES-vinnumiðlun.
Bent er á heimasíðu Evróráðgjafar, www.eures.is
Ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur
Hjá Vinnumálastofnun starfa tveir ráðgjafar, Arna Þór Jóhannesson og Sigríður Ásta Hauksdóttir og sinna þau starfs- og námsráðgjöf. Þjónusta þeirra stendur öllum til boða endurgjaldslaust en panta verður viðtal fyrirfram. Símatími ráðgjafanna er daglega milli kl. 08:30 og 9:30 og 13:00-14:00
Úrræði fyrir atvinnuleitendur
Vinnumálastofnun býður atvinnuleitendum upp á fjölmörg úrræði í atvinnuleit, sem ætluð eru til að bæta stöðu þeirra á vinnumarkaði. Framboð úrræða ræðst af atvinnuástandi og atvinnuhorfum.
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun á
Norðurlandi eystra
Skipagata 14
Akureyri
Opið mánud. - fimmtud.
frá 9:00 - 15:00 og föstud.
frá 9:00 - 12:00
Sími 460-5100
Fax 462-2100
Garðarsbraut 26
Húsavík
Opið mánud. miðv.d. og föstud.
frá 10 - 14
Sími 464-1111
Fax 464-1183
Netfang:
nordurland.eystra@vmst.is
Mynd















