Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra

1.      Námsúrræði skv. reglugerðum vinnumarkaðsaðgerðir

2.      Starfsþjálfun, reynsluráðning og starfskynning skv. reglugerð um vinnumarkaðsaðgerðir

3.      Starfsþjálfun í samstarfi við Plastiðjuna Bjarg-Iðjulund
Um er að ræða samning við Plastiðjuna Bjarg Iðjulund sem er starfsþjálfunarstaður fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu og/eða þá sem ekki hafa fengið vinnu á almennum vinnumakaði. Markmiðið er að hjálpa einstaklingnum að byggja upp sjálfstraust og öryggi, að hjálpa einstaklingnum að gera sér grein fyrir möguleikum sínum, að auðvelda val á framtíðarstarfsvettvangi. Með starfsþjálfun eru einstaklingarnir undir handleiðslu fagmanna. Þar fer fram mat á starfsgetu atvinnuleitandans sem framkvæmt er af ráðgjöfum Plastiðjunnar Bjargs-Iðjulundar. Tilgangurinn með starfsþjálfuninni er þjálfun í vinnutækni, mætingu, samskiptum, auka starfsþrek og undirbúningur fyrir  hinn almenna vinnumarkað. Þarna vinna einstaklingarnir vernduð störf  undir handleiðslu fagmanna. Þeir sem njóta þessa úrræðis halda atvinnuleysisbótum sínum þar sem ekki er um launakjör að ræða eins og á hinum almenna vinnumarkaði.

4.      Sérstök verkefni skv. reglum um sérstök verkefni á vegum Vinnumálastofnunar

5.      Hópráðgjöf
Tilgangur námskeiðsins er m.a. að auka möguleika á vinnumarkaði, læra af reynslu annarra, setja sér markmið, gera sér grein fyrir hvaða möguleikar eru fyrir hendi og hvernig hægt er að fjölga tækifærum, kynnast því hvað skiptir  máli þegar byrjað er í nýrri vinnu.

6.      Námskeið í atvinnuleit
Farið verður í ferilskrárgerð, hagnýt atriði varðandi atvinnuviðtöl o.fl. Gert er ráð fyrir að þátttakendur vinni að umsóknargerðum heima. Ráðgjafar sjá um eftirfylgni. Notast er við árangursríkustu þætti vinnuklúbbsins. Námskeiðið verður haldið ef næg þátttaka fæst en það fer eftir eftirspurn.

7.      Fjölsmiðjan
Markmið Fjölsmiðjunnar er að bjóða fjölþætta verkþjálfun og fræðslustarfsemi því unga fólki er þar starfar og  greina með því áhuga þeirra og hæfileika.  Þá er það einnig markmið með starfsemi Fjölsmiðjunnar að hún sé fornám að frekara skólanámi fyrir það unga fólk sem þar starfar og það fái þjálfun sem góðir starfskraftar  á almennum vinnumarkaði.
Þátttakendur fá  tilsögn í námi í grunnfögum og almennri fræðslu, í vinnuhegðun og skyldur á vinnumarkaði og um vinnumiðlun.

8.      BYR, starfsendurhæfing Norðurlands
Markmið Starfsendurhæfingar Norðurlands er eftirfarandi er að endurhæfa þátttakendur út í vinnu, auka lífsgæði þátttakenda, auka lífsgæði fjölskyldu þeirra, að þátttakandi fari í atvinnu að endurhæfingu lokinni og eða í áframhaldi nám, að endurhæfing fari fram í heimabyggð. Boðið er upp á heildstæða úrlausn á vanda hvers þátttakanda eins og kostur er á. Einnig er  boðið upp á námstengda endurhæfingu í samvinnu við menntastofnanir á svæðinu auk þess sem náið samstarf verður er við Vinnumálastofnun og atvinnulífið.
Þátttakandinn er sjálfur virkur í sinni endurhæfingu frá upphafi þar sem hann kemur með virkum hætti að gerð sinnar endurhæfingaráætlunar.

9.      Menntasmiðja kvenna, vorönn
Um er að ræða dagskóla fyrir konur og er námið þríþætt: Sjálfsstyrking og samskipti, hagnýtar greinar- bóklegar og verklegar s.s.íslenska, enska, tölvuleikni og sköpun, tjáning og menning kvenna.
Tilgangurinn með úrræðinu er að gera konur hæfari og virkari í atvinnuleit, á vinnumarkaðinum o.s.frv. og skuldbindur Menntasmiðjan sig til að leggja áherslu á atvinnuleitarþáttinn. Markmiðið er að konurnar fái fasta ótímabundna vinnu á hinum almenna vinnumarkaði eða fari í frekara nám.

10.  Menntasmiðja unga fólksins, haustönn
Tilgangurinn með úrræðinu er að gera ungt atvinnulaust fólk hæfara og virkara í atvinnuleit, virkara á vinnumarkaðinum o.s.frv. og skuldbindur Menntasmiðjan sig til að leggja áherslu á atvinnuleitarþáttinn með vinnuklúbbsefni og einnar til tveggja vikna starfskynningu í ákveðnum fyrirtækjum. Markmiðið er að unga fólkið fái fasta ótímabundna vinnu á hinum almenna vinnumarkaði eða fari í frekara nám.

11.  Áhugasviðspróf
Greiningin kemur að gagni við náms- og starfsval. Um er að ræða mjög gagnlegt sjálfsskoðunartæki.

12.  Greining atvinnulausra skv. matslistum – ACHENBACH   
Mælt og metið verður ástand og aðstæður langtímaatvinnulausra skv. ákveðnum matslistum m.t.t. einstaklingsbundinna úrræðna. Samvinna verður við félagsráðgjafa við úrvinnslu listanna og framlagningu niðurstaðnanna.

13.  Sund og líkamsrækt
Þetta úrræði er ætlað þeim sem haf verið lengi á atvinnuleysisskrá og er hugsað sem byrjunarskref í frekara ferli. Ráðgjafar meta þörf hvers og eins fyrir þetta úrræði.

14.  Námskeiðsstyrkir
Gert er ráð fyrir að atvinnuleitendur sæki um styrki til að sækja námskeið á eigin vegum. Vinsælustu námskeiðin sem fólk sækir um styrk til að sækja eru vinnuvéla- og meiraprófsnámskeið og tölvunámskeið.

15. Önnur úrræði

Úrræðin eru ekki tæmandi talin. Ný úrræði verða þróuð eftir því sem þurfa þykir.  

 


Samskipti

Vinnumálastofnun á
Norðurlandi eystra

Skipagata 14
Akureyri
Opið mánud. - fimmtud.
frá 9:00 - 15:00 og föstud.
frá 9:00 - 12:00

Sími 460-5100
Fax  462-2100

Garðarsbraut 26
Húsavík
Opið mánud. miðv.d. og föstud.
frá 10 - 14

Sími 464-1111
Fax 464-1183

Netfang:
nordurland.eystra@vmst.is

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun Norðurlandi eystra