Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun Suðurlandi

2.6.2010

Bústörf vegna eldgossins í Eyjafjallajökli

 Bústörf vegna eldgossins í Eyjafjallajökli

Einstaklingar vanir bústörfum óskast

Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á Selfossi svarar öllum fyrirspurnum varðandi  bústörf vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Síminn þar er 512-7780 og netfang sudurland@vmst.is

21.5.2010

Girðingavinna á gossvæðinu

Vantar starfsfólk við girðingavinnu á gossvæðinu.

21.5.2010

Störf við hreinsun ösku af húsum og mannvirkjum á gossvæðinu

Vantar starfsfólk við hreinsun ösku af húsum og mannvirkjum  á gossvæðinu.

21.5.2010

Störf á gossvæðinu

Vantar strax duglegt og vant starfsfólk til bústarfa á kúabúum ásamt annarri aðstoð á gossvæðinu.

20.11.2009

Greiðslur atvinnuleysistrygginga í desember

11.11.2009

Atvinnuleysi 7,6% í október

Skráð atvinnuleysi í október 2009 var 7,6% eða að meðaltali 12.682 manns og eykst atvinnuleysi um 4,4% að meðaltali frá september eða um 537 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,9%, eða 3.106 manns. Sjá nánar skýrslu um stöðu á vinnumarkaði í október 2009.

2.11.2009

Atvinnuleysistryggingar greiddar í dag

Í dag greiddi Vinnumálastofnun rúmlega 1,6 milljarða kr. í atvinnuleysistryggingar til um 13.100 einstaklinga. Heildargreiðslur í september voru hins vegar 1.811.874.313 kr. og var þá greitt til 15.324 einstaklinga.

29.10.2009

Fleiri náms- og starfsráðgjafar virkjaðir í þágu atvinnuleitenda

Á  miðvikudag var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.  Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi  taka þátt í að ná til atvinnuleitenda  sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni.

15.10.2009

30 milljónum úthlutað í aukaúthlutun úr starfsmenntasjóði félags- og tryggingam.ráðuneytisins

Verkefnið „Endurmenntun til starfa á nýju sviði“, sem eykur möguleika rafiðnaðarmanna sem misst hafa atvinnu að skipta um starfsumhverfi, var eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk úr aukaúthlutun starfsmenntasjóðs félags- og tryggingamálaráðuneytisins 2009. Úthlutað var til 17 verkefna að þessu sinni, alls um 25 milljónum króna. Að auki var ráðgjafasviði Vinnumálastofnunar veittur styrkur að fjárhæð kr. 5.000.000.- til úrræða fyrir atvinnulausa á höfuðborgarsvæðinu.

12.10.2009

Atvinnuleysi 7,2% í september

Skráð atvinnuleysi í september 2009 var 7,2% eða að meðaltali 12.145 manns og minnkar atvinnuleysi um 9,3% að meðaltali frá ágúst eða um 1.242 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,3%, eða 2.229 mannsþ

Upplýsingar um atvinnuleysistryggingarAtvinnumál kvennaÞýðingar á pólskuRáðgjöf um starfsþróun og starfsval

Samskipti

Vinnumálastofnun
Suðurlandi
Austurvegur 56
800 Selfoss

Opið alla virka daga
frá 9:00 - 15:00,
nema föstudaga 9 -12

Sími 512-7780
Fax   571-0790
Netfang


Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun Suðurlands