Vinnumálastofnun Vestfjörðum
Umsókn um atvinnu og atvinnuleysisbætur
Hver sá sem óskar eftir að skrá sig til atvinnuleitar, getur snúið sér til þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar (VMST) á því svæði þar sem hann á lögheimili/dvelur og óskað eftir upplýsingum um laus störf og jafnframt óskað eftir aðstoð við að finna starf við hæfi. Geti starfsfólk þjónustuskrifstofunnar ekki vísað atvinnuleitanda strax á vinnu innan umdæmisins er hægt að skrá hann sem umsækjanda um atvinnu eða eftir atvikum atvinnulausan nema unnt sé að vísa á vinnu utan umdæmisins.
Óski atvinnuleitandi eftir að skrá sig á atvinnuleysisskrá fær hann afhent öll nauðsynleg gögn og upplýsingaefni og ákvarðar starfsfólk VMST hvort viðkomandi eigi bótarétt. Allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur fara á fund með ráðgjafa þar sem farið er yfir réttindi og skyldur atvinnuleitenda og starfsleitaráætlun er gerð. Atvinnuleysisbætur eru greiddar út mánaðarlega.
Allar nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar á hverju svæði.
Ítarlegri upplýsingar um atvinnuleysistryggingar
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun á
Vestfjörðum
Árnagötu 2-4
400 Ísafjörður
Sími 512 7790
Fax 534 7791
Opið alla virka daga
frá 9:00 - 15:00,
nema föstudaga 9 -12
Netfang
Mynd















