Europass er safnheiti yfir staðlaða menntunar- og starfshæfnimöppu. Meginmarkmiðið með Europass er að auðvelda gegnsæi menntunar og starfsreynslu, bæði heima og að heiman. Europass er einnig ætlað að auðvelda samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga og þar með auðvelda samanburð menntunar og reynslu yfir landamæri í Evrópu. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika fólks á milli landa, bæði vegna menntunar og atvinnu.
Vinnumálastofnun Vestfjörðum
7.6.2010
Evrópskar ferilskrár - uppsetning og kynningarmyndband (Europass)
Europass
Hvað er Europass?
Í Europass möppunni eru fimm skírteini eða skjöl sem tengja má hvert öðru. Hægt er að nota öll fimm skírteinin í einu eða hvert fyrir sig. Þau lýsa mismunandi þáttum í menntun, starfsþjálfun, starfsreynslu, tungumála- og menningarreynslu, auk óformlegri þátta eins og persónulegri hæfni einstaklings. Í möppunni, sem er samhæfð fyrir öll lönd Evrópu, eru því öll skírteini sem skipta máli vegna menntunar- og starfshæfni einstaklings.
Hægt er að safna eftirfarandi skírteinum í möppuna:
- Evrópskri ferilskrá. Hana geta allir fyllt út á vefnum og vistað í tölvunni sinni eða sent hana til hugsanlegra vinnuveitenda með starfsumsókn
- Mati og viðurkenningu á starfsmenntun. Fyrir þá sem lokið hafa starfsmenntun og vilja geta sýnt hvað hún felur í sér.
- Viðauka við prófskírteini - skírteinisviðauka. Fyrir þá sem lokið hafa háskólanámi.
- Starfsmenntavegabréfi. Fyrir þá sem taka hluta af starfsnámi eða endurmenntun erlendis. Allir þeir sem fá mannaskiptastyrk frá Leonardo da Vinci áætluninni fá starfsmenntavegabréf.
- Tungumálapassa. Fyrir þá sem vilja sýna fram á tungumálakunnáttu sína.
Fyrir hvern er Europass?
Europass er fyrir alla, óháð aldri, sem vilja skjalfesta nám sitt og/eða reynslu í 32 þátttökulöndum innan Evrópu.
Hvernig má nálgast Europass skírteinin?
Aðgengi að skírteinunum er mismunandi. Ferilskrá og tungumálavegabréf fylla einstaklingar út sjálfir, annað hvort rafrænt eða á pappír. Viðaukar við prófskírteini fylgja öllum íslenskum háskólaprófum og mat og viðurkenning á starfsmenntun er aðgengilegt á þessari heimasíðu
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun á
Vestfjörðum
Árnagötu 2-4
400 Ísafjörður
Sími 512 7790
Fax 534 7791
Opið alla virka daga
frá 9:00 - 15:00,
nema föstudaga 9 -12
Netfang
Mynd

























