Vinnumálastofnun Vestfjörðum
8.2.2010
Ný námskeið hjá Fræðslumiðstöð
Nú eru að hefjast ný námskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfarða. Áhugasamir atvinnuleitendur kynni sér námsstyrki stéttarfélaga og námsstyrki Vinnumálastofnunar sem styrkir námskeið sem geta styrkt stöðu einstaklinga á vinnumarkaði. ATH sækja þarf um námsskeiðsstyrk tl Vinnumálastofnunar áður en námskeið hefst og er umsóknareyðublað hér: http://www.vinnumalastofnun.is/svmvf/vinnumalastofnun-vestfjordum/eydublod/
Námskeið sem eru að hefjast!
Pólska I. Hefst 15. febrúar. Kennt mándaga kl. 18:00-20:00. Verð 26.500 kr. (24 kennslust.).Námskeið fyrir þá sem hafa engan grunn í pólsku. Tilvalið fyrir þá sem eiga samskipti við pólskumælandi fólk svo sem vinnuveitendur, starfsfólk opinberra stofnana og þjónustufyrirtækja og aðra áhugasama.
Færni – tölvunámskeið fyrir lesblinda. Kennt mánudag til miðvikudags 15. – 17. febrúar kl. 18:00-21:00. Verð 18.300 kr. (13 kennslust.).Námskeið ætlað lesblindum og öðrum sem vilja nýta sér tækni við lestur og skrift. Kennari frá Félagi lesblindra á Íslandi.
Grasalækningar og íslenskar lækningajurtir – fjarnámskeið frá EHÍ. Kennt miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20:15 – 22:15. Verð 5.900 kr. (3 kennslust.).Námskeið fyrir alla þá sem hafa áhuga á íslenskum jurtum og notkun þeirra. Kennt í gegnum fjarfundabúnað.
Ítalska I. Hefst 17. febrúar. Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30-19:00. Verð 26.500 kr. (24 kennslust.).Námskeið ætlað byrjendum í ítölsku.
Íslenska fyrir útlendinga. Hefst 18. febrúar. Kennt þriðjudaga og fimtudaga kl. 18:00-20:00. Verð 29.000 (60 kennslust). Enska fyrir lengra komna – talmál. Hefst 24. febrúar. Kennt miðvikudaga kl. 19:30-21:30. Verð 26.500 kr. (24 kennslust.).Námskeið fyrir þá sem hafa grunn í ensku en vilja ná betri tökum á málinu. Kennsla fer fram á ensku.
Excel.Hefst 25. febrúar. Kennt fimmtudaga kl. 20:00-22:00. Verð 18.600 kr. (15 kennslust.).Námskeið fyrir þá sem vilja ná betri tökum á excel töflureikninum.
Samtals- og viðtalstækni. Kennt laugardaginn 27. febrúar kl. 10:30-16:00. Verð 18.000 kr. (7 kennslust.).Námskeið ætlað sjúkraliðum en öllum opið.
Rétt er að vekja athygli á því að í mörgum tilfellum styrkja stéttarfélög félagsmenn sína til að sækja námskeið.Allar frekari upplýsingar og skráning á www.frmst.is og í síma: 456-5025
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun á
Vestfjörðum
Árnagötu 2-4
400 Ísafjörður
Sími 512 7790
Fax 534 7791
Opið alla virka daga
frá 9:00 - 15:00,
nema föstudaga 9 -12
Netfang
Mynd

























