Vinnumálastofnun Vestfjörðum
9.3.2010
Leiðing til velgengni - úr skuldum í jafnvægi
Atvinnuleitendum á norðanverðum Vestfjörðum býðst núna að sækja námskeiðið:
Leiðin til velgengni - Úr skuldum í jafnvægi (ATH takmörkuð námskeiðspláss í boði en námskeiðið er á vegum Starfsendurhæfingar Vestfjarða ).
Hugmyndafræðin „ Leiðin til velgengni“ skiptir fjármálalegri þroskagöngu einstaklings upp í sjö þrep. Á hverju þrepi tileinkar einstaklingurinn sér eitthvað sem er nauðsynlegt til að öðlast velgengni í fjármálum. Þegar hann er búin að tileinka sér lærdóm fyrsta þreps er hafist handa við verkefnin á næsta þrepi.
Áður en einstaklingur uppgötvar hver lærdómur hvers þreps er hugsar hann og hegðar sér á ákveðin hátt. Hann trúir að hann sé að gera rétt þótt reyndin sé að fjármálavandi myndast. Lærdómur hvers þreps er orðin að þroska þegar einstaklingur er búin að tileinka sér nýja hegðun. Hegðun þar sem hann framkvæmir jafnharðan og áreynslulaust það sem lært var á þrepinu. Þessi hegðun tryggir að fjarmálavandinn sem myndaðist hverfur. Sjá nánar: http://ltv.is/
Námskeiðið er frá 07.04.2010 - 22.04.2010
- Staður:
- Fræðslumiðstöð Vestfjarðar (Starfsendurhæfing Vestfjarða sér um námskeiðið)
- Námskeið:
- Úr skuldum í jafnvægi
Dagar
Dagur 1 Miðvikudagur 7. apríl.
Dagur 2 Fimmtudagur 8. apríl.
Dagur 3 Fimmtudagur 15 apríl.
Dagur 4 Þriðjudagur 20 apríl
Dagur 5 Miðvikudagur 21 apríl
ATH Sækja þarf um námskeiðspláss til Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum fyrir 26. mars 2010 en takmörkuð námskeiðspláss eru á námskeiðinu.
Leita
Samskipti
Vinnumálastofnun á
Vestfjörðum
Árnagötu 2-4
400 Ísafjörður
Sími 512 7790
Fax 534 7791
Opið alla virka daga
frá 9:00 - 15:00,
nema föstudaga 9 -12
Netfang
Mynd

























