Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun Vesturlandi

Umsókn um atvinnu og atvinnuleysisbætur

Hver sá sem óskar eftir að skrá sig til atvinnuleitar, getur snúið sér til þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar (VMST) á því svæði þar sem hann á lögheimili/dvelur og óskað eftir upplýsingum um laus störf og jafnframt óskað eftir aðstoð við að finna starf við hæfi. Geti starfsfólk þjónustuskrifstofunnar ekki vísað atvinnuleitanda strax á vinnu innan umdæmisins er hægt að skrá hann sem umsækjanda um atvinnu eða eftir atvikum atvinnulausan nema unnt sé að vísa á vinnu utan umdæmisins.

Óski atvinnuleitandi eftir að skrá sig á atvinnuleysisskrá fær hann afhent öll nauðsynleg gögn og upplýsingaefni og ákvarðar starfsfólk VMST hvort viðkomandi eigi bótarétt. Allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur fara á fund með ráðgjafa þar sem farið er yfir réttindi og skyldur atvinnuleitenda og starfsleitaráætlun er gerð. Atvinnuleysisbætur eru greiddar út mánaðarlega. 

Allar nánari upplýsingar má fá hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar á hverju svæði.

Ítarlegri upplýsingar um atvinnuleysistryggingar

 

 


Samskipti

Vinnumálastofnun á
Vesturlandi
Stillholt 18, 2. hæð
300 Akranes

Opið alla virka daga
frá 9:00 - 15:00,
nema föstudaga 9 -12

Sími 430-5300
Fax 430-5301
Netfang


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun Vesturlandi