Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

Um Vinnumálastofnun

Vinnumálastofnun heyrir undir félagsmálaráðherra og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs.

Vinnumálastofnun starfar samkvæmt lögum nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir og lögum nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar.

Markmið laganna er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði, auk þess sem lögunum er ætlað að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Vinnumálastofnun skal reka þjónustustöðvar um landið skv. ákvörðun félagsmálaráðherra. Félagsmálaráðherra skipar jafnframt tíu manna stjórn Vinnumálastofnunar að fengnum tilnefningum til fjögurra ára í senn, sem skal hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar. Þá skipar félagsmálaráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð sem skulu vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipuilag og val á vinnumarkaðsúrræðum.

Meðal verkefna Vinnumálastofnunar er að halda skrá yfir laus störf sem í boði eru á landinu öllu, miðla upplýsingum um laus störf til atvinnuleitenda og veita þeim aðstoð  við að finna störf við hæfi, og aðstoða atvinnurekendur við ráðningu starfsfólks og veita þeim upplýsingar um framboð á vinnuafli.

Vinnumálastofnun annast skipulag vinnumarkaðsúrræða, s.s. námskeiða, starfsúrræða, ráðgjöf, námsúrræða og atvinnutengdrar endurhæfingar. Þjónusta ráðgjafa Vinnumálastofnunar skal miðast við einstaklingsbundnar þarfir hvers og eins atvinnuleitanda. Vinnumálastofnun ber að leggja mat á vinnufærni atvinnuleitanda þegar hann sækir um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Á grundvelli matsins er gerð áætlun um atvinnuleit hans og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum, eða honum leiðbeint um aðra þjónustu ef þörf er talin á.

Vinnumálastofnun skal reglulega afla upplýsinga um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur frá einstökum landshlutum. Jafnframt skal hún fylgjast með samsetningu vinnuaflsins í landinu, kanna reglubundið mannaflaþörf og framtíðarhorfur í atvinnugreinum og miðla upplýsingum um atvinnuástandið í landinu.

Skipurit Vinnumálastofnunar

Stjórn Vinnumálastofnunar

Starfsfólk Vinnumálastofnunar

Stefnumið Vinnumálastofnunar - starfsmannastefna - jafnréttisstefna - fræðslustefna

Hafðu samband

Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun