Vinnumálastofnun
|
Jafnréttisstefna Vinnumálastofnunar Vinnumálastofnun lýsir þeim vilja að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla. Það er jafnframt vilji Vinnumálastofnunar að jafnréttisstefnan sé sýnileg og virk í framkvæmd. Jafnréttisstefna Vinnumálastofnunar felur það í sér að virða beri ákvæði laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, við ráðningar í störf. Hvorki skal mismuna umsækjendum né starfsmönnum eftir kynferði né mismuna þeim á nokkurn hátt um vinnuaðstæður og vinnuskilyrði. Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jöfnun á stöðu kynjanna skulu vera virkur þáttur í starfsmannastefnu Vinnumálastofnunar. Leitast skal við að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna. Þess skal gætt að laus störf hjá Vinnumálastofnun séu auglýst í samræmi við reglur þar um og jafnréttissjónarmiða skal gætt þegar ráðið er í stöður. Það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfshópi skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningar í störf þegar umsækjendur eru jafnhæfir. Við úthlutun verkefna skal þess gætt að bæði kynin eigi jafna möguleika innan stofnunarinnar. Þá skal þess gætt við tilfærslu í störfum og við uppsagnir að kynjum sé ekki mismunað. Gæta skal þess að konur og karlar njóti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna sbr. lög nr. 96/2000. Það telst þó ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar og barnsburðar. Starfsmenn Vinnumálastofnunar skulu eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma þar sem því verður við komið.
Samþykkt á 58. stjórnarfundi Vinnumálastofnunar föstudaginn 26. janúar 2001. |
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















