Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

  Starfsmannastefna Vinnumálastofnunar

Til að ná markmiðum sínum hefur Vinnumálastofnun  sett sér eftirfarandi starfsmannastefnu:

Gott starfsfólk er grunnurinn að góðum árangri og því er lögð áhersla á:

  • hæft starfsfólk sem hafi þekkingu á viðfangsefnum stofnunarinnar,
  • áhugaverðan og aðlaðandi vinnustað,
  • að starfsandi sé góður,
  • að viðskiptavinum stofnunarinnar  sé sýnt vinsamlegt viðmót  og þjónustan sé til fyrirmyndar,
  • að þess sé gætt að jafnræði og sanngirni gildi við afgreiðslu mála,
  • að  gætt sé fyllsta trúnaðar varðandi upplýsingar sem starfsfólk öðlast vegna starfsins,
  • að verklagsreglur við meðhöndlun mála hjá stofnuninni séu skýrar og öllum ljósar,
  • að starfsfólk Vinnumálastofnunar hafi þekkingu og nýjustu upplýsingar til að vinna eftir s.s. á stjórnsýslulögum og á öðrum þeim lögum og reglugerðum sem um starfsemina varða.

Til að framfylgja starfsmannastefnu sinni mun Vinnumálastofnun:

  • setja sér fræðslustefnu ásamt árlegri þjálfunaráætlun til að hver og einn hafi nauðsynlega þekkingu til að takast á við þau verkefni sem honum eru falin,
  • gæta þess að starfsmannasamtöl séu tekin a.m.k. árlega til að bæta samskipti á vinnustaðnum og gefa starfsfólki kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri,
  • gefa út og viðhalda starfslýsingum eftir samræmdum reglum fyrir öll störf innan stofnunarinnar og svæðisvinnumiðlana.

    Samþykkt á 58. stjórnarfundi Vinnumálastofnunar föstudaginn 26. janúar 2001.

 


Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun