Ungt fólk til athafna
Ungt fólk til athafna!
Réttur til vinnu eða virkni
Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur falið Vinnumálastofnun að tryggja það markmið að enginn verði atvinnulaus lengur en þrjá mánuði án þess að bjóðast vinna eða virkniúrræði.
Þessu markmiði skal náð gagnvart fólki yngra en 25 ára fyrir 1. apríl 2010 og 1. september 2010 fyrir aðra.
Vinnumálastofnun mun ná settu markmiði í nánu samstarfi við stéttarfélög, fyrirtæki og sveitarfélög.
Fimm leiðir til framtíðar
Settar hafa verið upp 5 leiðir sem til samans er ætlað að mynda yfir 2.000 ný starfs- eða námstækifæri fyrir ungt fólk:
- allt að 450 ný námstækifæri í framhaldsskólum landsins fyrir ungt fólk án atvinnu
- allt að 700 ný námstækifæri fyrir fólk án atvinnu til náms á vegum símenntunarstöðva
og til aðfararnáms að frumgreinadeildum - allt að 450 ný starfsþjálfunarpláss og störf við átaksverkefni á vegum félagasamtaka,
sveitarfélaga og annarra - allt að 400 ný sjálfboðastörf
- allt að 400 ný pláss á vinnustofum ásamt endurhæfi ngar- og meðferðarúrræðum
Samstarfsaðilar óskast!
Til að hrinda verkefninu í framkvæmd óskar Vinnumálastofnun eftir:
- hugmyndum um átaksverkefni, sjálfboðastörf, menntunar- og meðferðarúrræði
- sjálfboðaliðum til að starfa með ungu atvinnulausu fólki
- starfsþjálfunarplássum fyrir unga atvinnuleitendur hjá fyrirtækjum og stofnunum
Sjá nánar auglýsingu um samstarfsaðila hér - í pdf.
Fyrirspurnir og ósk um nánari upplýsingar má senda á Hrafnhildi Tómasdóttur sem hefur yfirumsjón með verkefninu af hálfu Vinnumálastofnunar. Einnig er hægt að hafa samband í síma 512 4730 eða koma til okkar á þjónustuskrifstofuna Suðurlandsbraut 22.
Leita
Samskipti
Ungt fólk til athafna
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 512 4730
Faxnúmer 578 7910
Hafa samband
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00,
nema föstudaga
frá kl. 09:00 - 12:00
Ath. lokað er í hádeginu
milli kl 12:00 - 13.00
mánudaga til fimmtudaga
Mynd







