Vinnandi vegur

VINNANDI VEGUR er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Ávinningur allra er hafður að leiðarljósi: Um leið og atvinnurekendum er gert kleift að nýráða starfsfólk er atvinnuleitendum gefið tækifæri til þátttöku í atvinnulífinu.
Með þátttöku í VINNANDI VEGI eiga atvinnurekendur kost á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.
Fyrirtæki og stofnanir geta:
- Ráðið starfsmann sem hefur verið án vinnu í 12 mánuði eða lengur og fengið 167.176 kr. á mánuði í styrk upp í kjarasamningsbundin laun, auk 8% framlags í lífeyrissjóð. Tímalengd ráðningarstyrks getur verið allt að 12 mánuðir.
- Ráðið starfsmann sem hefur verið án vinnu skemur en 12 mánuði og fengið allt að 6 mánaða styrk sem miðast við bótarétt starfsmannsins upp í kjarasamningsbundin laun, auk 8% framlags í lífeyrissjóð.
Átakið er tímabundið og stendur eingöngu frá 15. febrúar til 31. maí og tekur til ráðninga á því tímabili.
Tímalengd styrks er óháð þeim tíma sem atvinnuleitandi getur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Þannig getur atvinnurekandi fengið styrk vegna ráðningar starfsmanns af atvinnuleysisskrá svo fremi sem starfsmaðurinn hafi verið tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar hann var ráðinn.
SKILYRÐI:
- Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér fjölgun starfsmanna.
- Að fyrir sé að minnsta kosti einn starfsmaður á launaskrá.
- Að síðastliðna sex mánuði hafi ekki verið sagt upp starfsmönnum sem gegnt höfðu störfum sem fyrirhugað er að ráða atvinnuleitendur til að gegna.
- Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli ekki í sér verulega röskun á samkeppni innan atvinnugreinarinnar á því svæði sem um ræðir hverju sinni.
- Að staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda fylgi með reikningi hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar til Vinnumálastofnunar.
LEIÐIR TIL RÁÐNINGA
Við nýráðningar verður boðið upp á mismunandi leiðir sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum:
1. Almennar ráðningar
2. Reynsluráðningar
3. Starfsþjálfun
4. Nýsköpun innan fyrirtækja og stofnana
5. Eigið frumkvöðlastarf og/eða gerð viðskiptaáætlunar
6. Fyrirtækjanám
7. Vinnustaðaþjálfun
8. Átaksverkefni
HVERNIG GENGUR RÁÐNING FYRIR SIG?
- Atvinnurekandi á höfuðborgarsvæðinu sækir um aðgang að skráningu starfa í grunn verkefnisins fyrir 31. maí. Vinnandi vegur. Innan sólarhrings frá því að skráning berst fær atvinnurekandi aðgangsupplýsingar að sínu svæði í kerfinu, en þar er gengið frá öllum skráningum þeirra starfa sem leitað er að fólki í og óskar um leið eftir þjónustu ráðningamiðlunar. Atvinnurekandi á landsbyggðinni hefur samband við næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálstofnunar og þarf því ekki að sækja um aðgang hér.
- Ráðningarmiðlun, í samstarfi við atvinnurekanda, leitar að starfsmönnum sem uppfylla skilyrði atvinnurekanda og hefur milligöngu um starfsviðtöl.
- Við ráðningu starfsmanns skrifar atvinnurekandi undir þríhliða ráðningarsamning sem gerður er milli atvinnuleitanda, atvinnurekanda og Vinnumálastofnunar (VMST). Ráðningarmiðlunin vottar samninginn og sendir VMST til staðfestingar og afgreiðslu styrks.
- Greiðslur atvinnurekenda:
-
Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.
-
Atvinnurekandi sendir reikninginn til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Kringlunni 1
103 Reykjavík -
Gunnar yfirfer reikningana. Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
-
Afrit launaseðils skal fylgja reikningi
-
Á reikningnum skal koma fram:
a. Nafn atvinnuleitanda
b. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
d. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við
Ráðningarþjónustur
Eftirfarandi ráðningarþjónustur taka þátt í í verkefninu. Hægt er að fara inn á heimasíður þeirra og kynna sér þjónustu þeirra og skoða þar laus störf sem tengjast verkefninu Vinnandi vegur.
HH Ráðgjöf
HH Ráðgjöf
Fiskislóð 81,
101 Reykjavík
Sími: 561 5900
Hagvangur
Hagvangur
Skógarhlíð 2
105 Reykjavík
Sími: 520 4700![]()
Hugtak Mannauðsráðgjöf
Hugtak Mannauðsráðgjöf
Höfðabakki 3
110 Reykjavík
sími: 571 5000![]()
Talent Ráðningar ehf
Talent Ráðningar ehf
Linnetsstíg 1
220 Hafnarfjörður
sími: 552 1600![]()





English

