Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Vinnumálastofnun

Forsíða:

Vinnumálastofnun

Hlutverk og verkefni Vinnumálastofnunar

Vinnumálastofnun heyrir undir velferðarráðherra og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs.

Vinnumálastofnun starfar samkvæmt lögum nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir og lögum nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar. Markmið laganna er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði, auk þess sem lögunum er ætlað að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Vinnumálastofnun rekur 8 þjónustuskrifstofur í kringum landið auk þriggja smærri útibúa, þar sem veitt er öll almenn þjónusta við atvinnuleitendur, skráning, mat á færni, ráðgjöf og úrræði og vinnumiðlun auk samvinnu við aðra þjónustuaðila um úrræði og vinnumarkaðsaðgerðir.

Velferðrráðherra skipar jafnframt tíu manna stjórn Vinnumálastofnunar að fengnum tilnefningum til fjögurra ára í senn, sem skal hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar. Þá skipar Velferðarrráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð sem skulu vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.

Meðal verkefna Vinnumálastofnunar er að:

  • halda skrá yfir laus störf sem í boði eru á landinu öllu, miðla upplýsingum um laus störf til atvinnuleitenda og veita þeim aðstoð  við að finna störf við hæfi, og aðstoða atvinnurekendur við ráðningu starfsfólks og veita þeim upplýsingar um framboð á vinnuafli
  • annast skráningu atvinnulausra, útreikninga og greiðslu atvinnuleysisbóta
  • annast skipulag vinnumarkaðsúrræða, s.s. námskeiða, starfsúrræða, ráðgjöf, námsúrræða og atvinnutengdrar endurhæfingar. Þjónusta ráðgjafa Vinnumálastofnunar skal miðast við einstaklingsbundnar þarfir hvers og eins atvinnuleitanda. Vinnumálastofnun ber að leggja mat á vinnufærni atvinnuleitanda þegar hann sækir um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Á grundvelli matsins er gerð áætlun um atvinnuleit hans og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum, eða honum leiðbeint um aðra þjónustu ef þörf er talin á
  • halda utan um og afla upplýsinga um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur frá einstökum landshlutum. Einnig fylgist Vinnumálastofnun með samsetningu vinnuaflsins í landinu, kannar reglubundið mannaflaþörf og framtíðarhorfur í atvinnugreinum og miðla upplýsingum um atvinnuástandið í landinu
  • annast útgáfu atvinnuleyfa og skráningu útlendinga á íslenskum vinnumarkaði og starfsmannaleigum

Aðalskrifstofa

Aðalskrifstofa  Kringlunni 1, 103 Reykjavík - Sjá kort
Sími 515 4800
Bréfasími 511 2520
Opið frá klukkan 9:00 til 15:00 alla virka daga
Netfang: postur@vmst.is


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu