Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Ættleiðingarstyrkur

Forsíða:

Vinnumálastofnun - Ættleiðingarstyrkur

Markmið laga 52/2006 um ættleiðingarstyrki er að aðstoða kjörforeldra vegna þess kostnaðar sem skapast við ættleiðingarferlið.

Ef kjörforeldrar uppfylla skilyrði laganna og eiga rétt samkvæmt þeim er ættleiðingarstyrkurinn, frá 1. júní 2011, eingreiðsla kr. 568.692.- Ef ættleidd eru fleiri en eitt barn samtímis er veittur styrkur vegna hvers barns umfram eitt sem nemur 20% af þeirri upphæð.  Fjárhæð styrksins er endurskoðuð í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á tveggja ára fresti.

Ættleiðingarstyrkur er eingreiðsla sem er greidd út samkvæmt umsókn kjörforeldra þegar erlend ættleiðing hefur verið staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við ákvæði laga um ættleiðingar.  Kjörforeldrar sem hafa fengið útgefið forsamþykki í samræmi við lög um ættleiðingar eiga einir rétt á ættleiðingarstyrk.  Þessi réttur er ekki framseljanlegur.

Umsókn

Sækja skal um styrk innan sex mánaða frá því erlend ættleiðing er staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við lög um ættleiðingar.  Réttur til ættleiðingarstyrks fellur niður að þessum tíma liðnum.

Ættleiðingarstyrkir eru undanþegnir staðgreiðslu skatta og hefur lögum um tekjuskatt verið breytt, sbr. 30. gr. l. nr. 90/2003.  Þannig að nú er leyfður frádráttur frá tekjum sem byggist á sannanlegum kostnaði sem fólk verður fyrir við ættleiðingu barns.  Skilyrði frádrættinum er að fullnægjandi reikningar liggi að baki.  Aldrei skal þó leyfð hærri fjárhæð til frádráttar en talin yrði til tekna sem ættleiðingarstyrkur.  Ef fjárhæð frádráttar verður lægri en styrkurinn ber að greiða tekjuskatt af mismuninum.  Á skattframtali er styrkurinn talinn upp sem tekjur, skv. útgefnum launamiða, en framteljendur skrá inn kostnað á móti.

Umsókninni skulu fylgja eftirfarandi fylgigögn:

  • Staðfesting Þjóðskrár um lögheimili umsækjenda samkvæmt íbúaskrá
  • Forsamþykki dómsmálaráðherra til ættleiðingar barns erlendis frá
  • Staðfesting erlends stjórnvalds um ættleiðinguna
  • Bréf frá sýslumanni um áritun/stimplun hins erlenda ættleiðingarskjals

Tengiliður

Guðlaug Birna Steinarsdóttir
gudlaug.steinarsdottir@vmst.is
Sími 515 - 4800
Bréfasími 511 - 2520
Kringlunni 1
103 Reykjavík


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu