Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir vinnumálastofnunar

17.2.2012

Atvinnutorg opnað

Atvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára var opnað í dag í Vinnumálastofnun. Ungt fólk í atvinnuleit fær aðstoð þar óháð rétti til atvinnuleysisbóta en aðaláherslan er þó á hóp ungs fólks sem er án bótaréttar eða er um það bil að klára bótarétt. Verkefnið er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis og Vinnumálastofnunar. Atvinnutorgið er staðsett í Kringlunni 1 en ungmenni munu fá tilvísun til Atvinnutorgsins í gegnum virkniráðgjafa þjónustumiðstöðvanna og ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

16.2.2012

Atvinnumessa 8. mars í Laugardagshöll

Atvinnumessa verður  haldin í Laugardaghöll þann  8. mars nk. Með því er verið að hrinda í framkvæmdvinnandivegur aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á langtímaatvinnulausa í þessu átaki. Slíkar atvinnumessur munu einnig fara fram nokkru síðar í Reykjanesbæ og á Akureyri.

14.2.2012

Atvinnuleysi í janúar var 7,2%

Skráð atvinnuleysi í janúar var 7,2% en að meðaltali voru 11.452 atvinnulausir í janúar og fækkaði atvinnulausum um 308 að meðaltali frá desember eða um 0,1 prósentustig.

10.2.2012

Evrópuverkefni GET mobile

Vinnumálastofnun er þátttakandi í Evrópuverkefninu GET mobile en það snýst um að hvetja konur og lítil fyrirtækilogo for printing 5x5 cm - Copy til að taka þátt í mannaskiptaverkefnum á vegum Evrópusambandsins. Þannig á að þróa aðferið til að veita þjálfun til fyrirtækja og kvenna og gefa út leiðbeinandi efni til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og nýútskrifaðra kvenna og þá sérstaklega atvinnulausra kvenna sem útskrifaðar eru úr vísinda eða viðskiptabrautum.
Mannaskiptaverkefni eru oft vannýtt auðlind fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu og kannanir sýna að fyrirtækin, sérstaklega í eigu kvenna, hika oft við að taka við lærlingum og sérstaklega þeim sem ekki tala tungumálið. Dæmi um ávinninga geta verið aukin nýsköpun og frumkvæði í fyrirtækinu, fjölmenning og tungumálaþekking.

2.2.2012

Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu

Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.

  • Atvinnuleitandi þarf að skrá sig af atvinnuleysisbótum þá daga sem verkefni stendur yfir.
  • Afskráning þarf að eiga sér stað áður en verkefni hefst og að loknu verkefni þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu og óska eftir endurskráningu.
  • Leggja þarf fram afrit af reikningi vegna vinnunnar eða skýringar sé ekki búið að gefa út reikning.
  • Afrit af reikningi þarf að berast Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar þegar reikningur er gefinn út.
  • Afskrá þarf heilan dag þrátt fyrir að verktakavinna vari skemur en 8 klst.
  • Jafnframt er ekki heimilt að safna upp tímum vegna verktakavinnu sbr. atvinnuleitandi sem kennir 2x2 klst í viku jafngildir afskráningu í 2 daga.

2.2.2012

Hópuppsagnir í janúar 2012

Engar hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í janúar 2012.

27.1.2012

Hefur þú hugmynd?

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?   logo for printing 5x5 cm - Copy

Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti  auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar.  Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetingar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
  • Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd. 

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 30.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000.  Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.

Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2012 og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins en þar má ennfremur finna nánari upplýsingar um styrkina.

www.atvinnumalkvenna.is

13.1.2012

Atvinnuleysi 7,3% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.

11.1.2012

Komdu hugmynd í framkvæmd á 48 klukkustundum - Atvinnu- og nýsköpunarhelgin í Reykjavík

anh.is

Helgina 13. til 15. janúar fer fram Atvinnu- og nýsköpunarhelgin í Reykjavík, viðburður sem haldinn er í þeim tilgangi að hjálpa einstaklingum að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Allir geta tekið þátt; þeir sem hafa hugmynd að vöru eða þjónustu og einnig þeir sem vilja hjálpa hugmyndum annarra við að verða að veruleika. Hugmyndir þátttakenda geta verið margskonar og mislangt á veg komnar, þess vegna algjörlega ómótaðar hugmyndir að vöru eða þjónustu. 
Viðburðurinn fer fram í Háskóla Íslands í stofu 201 Árnagarði. Þátttaka er ókeypis og skráning og nánari upplýsingar eru á vef á anh.is.

Að helginni standa Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur og Landsbankinn í samstarfi við Reykjavíkurborg.

9.1.2012

Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar

Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu