Fréttir vinnumálastofnunar
13.12.2002
Atvinnuleysi í nóvembermánuði 2002
Í nóvembermánuði síðastliðnum voru skráðir 85.584 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.077 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,8% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í nóvember 2002.
12.12.2002
Atvinnuleysisbætur / rauðir dagar
Vinnumálastofnun hefur tekið upp nýjar vinnureglur varðandi greiðslu atvinnuleysisbóta til einstaklinga sem eru á bótum vegna hráefnisskorts.
Vinnuregla þessi felur í sér að helgidagar verða ekki greiddir til einstaklinga sem öðlast hafa rétt til óskertra launa þar sem þeir eiga að fá viðkomandi daga greidda hjá sínum vinnuveitanda.
Vinnuregla þessi felur í sér að helgidagar verða ekki greiddir til einstaklinga sem öðlast hafa rétt til óskertra launa þar sem þeir eiga að fá viðkomandi daga greidda hjá sínum vinnuveitanda.
22.11.2002
EES-Vinnumiðlun meðal þátttakenda í Evrópuhúsi 2002 í Perlunni
Opið Evrópuhús verður í Perlunni í Reykjavík dagana 22-24 nóvember 2002. Þar verður sýning og kynning á þeim samstarfsáætlunum Evrópusambandsins sem Íslendingar hafa þátttökurétt að í gegnum EES samninginn og reka þjónustuskrifstofur á Íslandi.
18.11.2002
Nýtt fréttabréf Vinnumálastofnunar
Út er komið 3. tölublað fréttabréfs Vinnumálastofnunar Af vettvangi vinnumála. Meðal efnis er grein eftir Gissur Pétursson forstjóra þar sem hann fjallar um hugsanleg áhrif stækkunar ESB á réttindamál á vinnumarkaði, fréttir af svæðisvinnumiðlunum og horfur í útgjöldum vegna atvinnuleysisbóta.
15.11.2002
Atvinnuleysi í októbermánuði 2002
Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 81.101 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.525 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,5% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í október 2002.
15.11.2002
Auglýsing um sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlana.
Vegna auglýsingar í Morgunblaðinu um sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlana er bent á að reglur 238/1999 um úthlutun til sérstakra verkefna sem hægt er að nálgast hér: reglur238_1999.htm
Einnig eru leiðbeiningar um feril og meðferð umsókna sem hægt er að nálgast hér: leidbserstokverkefni.htm
Nánari upplýsingar veita: Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og svæðisvinnumiðlanir um land allt.
Einnig eru leiðbeiningar um feril og meðferð umsókna sem hægt er að nálgast hér: leidbserstokverkefni.htm
Nánari upplýsingar veita: Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og svæðisvinnumiðlanir um land allt.
4.11.2002
Haustfundur EURES á Íslandi 2002
Haustfundur Eures á Íslandi var haldinn á Grand Hótel föstudaginn 1. nóvember síðast liðinn.
11.10.2002
Atvinnuleysi í septembermánuði 2002
Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 66.695 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.178 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,2% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í september 2002.
30.9.2002
Ársfundur Vinnumálastofnunar 2002
Ársfundur Vinnumálastofnunar var haldinn í Listasafni Reykjavíkur, föstudaginn 27. september síðast liðinn.
18.9.2002
Starfsmenntaverðlaunin til ÚA, MFA og Iðan.is
Forseti Íslands afhenti Starfsmenntaverðlaun
Starfsmenntaráðs og Menntar föstudaginn 13. september sl. í salarkynnum ASÍ. Verðlaunin eru veitt þeim aðilum sem þykja vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmennunar á Íslandi og eru þau veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja og félagasamtaka, flokki skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Verðlaunahafarnir í ár eru Útgerðarfélag Akureyringa í flokki fyrirtækja, Menningar- og fræðslusamband alþýðu (MFA) í flokki skóla og fræðsluaðila og Iðan, upplýsingavefur Samtaka iðnaðarins í opnum flokki.
13.9.2002
Atvinnuleysi í ágústmánuði 2002
Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 74.765 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.404 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,2% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í ágúst 2002.
2.9.2002
Úrræði svæðisvinnumiðlana
Vinnumálastofnun hefur gefið út skýrslu um úrræði
svæðisvinnumiðlana fyrir atvinnuleitendur árið 2001.
Skýrslan er yfirlit yfir helstu úrræði svæðisvinnumiðlana
árið 2001 ásamt greiningu á þátttakendum í úrræðum.
Skýrslan er á PDF formi, því þarf Acrobat reader til að lesa hana.
16.8.2002
Atvinnuleysi í júlímánuði 2002
Í júlímánuði síðastliðnum voru skráðir 81.118 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.530 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,3% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í júlí 2002.
23.7.2002
Menntun er skemmtun
Vika símenntunar verður haldin 8.-14. september í ár og er yfirskriftin Símenntun í atvinnulífinu.
Ýmsir viðburðir tengdir þema átaksins verða í gangi alla Vikuna auk þess sem Vika símenntunar er ætluð til að vekja athygli fólks á mikilvægi þess að afla sér þekkingar allt lífið.
12.7.2002
Atvinnuleysi í júnímánuði 2002
Í júnímánuði síðastliðnum voru skráðir 71.105 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.558 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,3% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í júní 2002.
28.6.2002
Auglýsing um sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlana.
Vegna auglýsingar í Morgunblaðinu 1. júlí 2002 um sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlana er bent á að reglur 238/1999 um úthlutun til sérstakra verkefna sem hægt er að nálgast hér: reglur238_1999.htm
Einnig eru leiðbeiningar um feril og meðferð umsókna sem hægt er að nálgast hér: leidbserstokverkefni.htm
Nánari upplýsingar veita: Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og svæðisvinnumiðlanir um land allt.
Einnig eru leiðbeiningar um feril og meðferð umsókna sem hægt er að nálgast hér: leidbserstokverkefni.htm
Nánari upplýsingar veita: Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins og svæðisvinnumiðlanir um land allt.
27.6.2002
Leiðrétt skýrsla Vinnumarkaðsrannsóknir vorið 2002
Í upprunalegu skýrslunni sem kom á netið 21. júní, og hefur verið dreift í prentuðu formi, kom röng tala fram á forsíðu þar sem sagði um byggingariðnað að einungis 8% telji að verkefnastaðan verði betri næsta vetur, en það á að vera 12%. Jafnframt hafa stöku stafsetningarvillur verið lagfærður.
Hér er hægt að taka niður skýrsluna á PDF formi
24.6.2002
Vinnumarkaðsrannsóknir vorið 2002
Vinnumálastofnun hefur sent frá sér skýrslu um stöðu og horfur á vinnumarkaðinum vorið 2002.
13.6.2002
Atvinnuleysi í maímánuði 2002
Í maímánuði síðastliðnum voru skráðir 81.966 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.565 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,5% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í maí 2002.
12.6.2002
Samkomulag um starfsmenntun
Fulltrúar SA, LÍÚ og Sjómannasambands Íslands hafa ásamt félagsmálaráðherra undirritað samkomulag um starfsmenntamál sjómanna. Verkefninu verða tryggðar 45 milljónir króna frá Atvinnuleysistryggingasjóði á þriggja ára samningstíma.
24.5.2002
NÝTT - Ný skrifstofa á Sauðárkróki
Þjónustuskrifstofa Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra á Sauðárkróki flutti þ. 22. maí í nýtt húsnæði. Sl. þrjú ár hefur skrifstofan verið staðsett í Stjórnsýsluhúsinu við Faxtorg, við fremur þröngan kost. Hin nýja skrifstofa er ekki langt undan heldur flyst hún yfir götuna í nýtt þróunarsetur sem kallað er Nafir. Búnaðarbankinn er á fyrstu hæð hússins. Þarna verða m.a. til húsa auk Svæðisvinnumiðlunar, Vinnueftirlit ríkisins, Atvinnuþróunarfélagið Hringur og Farskóli Norðurlands vestra. Skrifstofan er rúmgóð og björt og við þetta mun þjónusta við viðskiptavini skrifstofunnar aukast til muna. Starfsmaður Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra á Sauðárkróki er Sigrún Erla Vilhjálmsdóttir.
14.5.2002
Atvinnuleysistölur fyrir apríl 2002
Í aprílmánuði síðastliðnum voru skráðir 81.193 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.692 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,6% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í apríl 2002.
30.4.2002
Úthlutun úr starfsmenntasjóði í apríl 2002
Starfsmenntaráð auglýsti eftir styrkumsóknum í starfsmenntasjóð í febrúar sl.
Auglýst var eftir umsóknum í þrjá flokka:
Auglýst var eftir umsóknum í þrjá flokka:
- starfsmenntun og upplýsingatækni
- aukin gæði í starfsmenntun með áherslu á þjálfun leiðbeinenda
- starfsmenntun fatlaðra.
24.4.2002
Málþing um launamun kynjanna
28. febrúar síðastliðinn var haldið málþing um launamun kynjanna á vegum félagsmálaráðuneytisins, Jafnréttisráðs, Jafnréttisstofu og Vinumálastofnunar. Þau erindi sem þar voru flutt eru nú öll aðgengileg á netinu:
16.4.2002
Boðað er til opins fundar
Boðað er til opins fundar félagsmálaráðuneytis, Vinnumálastofnunar og Útlendingaeftirlits um stefnuna við afgreiðslu atvinnu- og dvalarleyfa, miðvikudaginn 17. apríl 2002, kl. 15:00 17:00, haldinn í Borgartúni 6, Reykjavík.
16.4.2002
Stefna Vinnumálastofnunar um veitingu atvinnuleyfa á árinu 2002
Félagsmálaráðuneytið hefur í samráði við aðila vinnumarkaðarins samþykkt stefnu Vinnumálastofnunar um veitingu atvinnuleyfa á árinu 2002. Var stefnan kynnt á opnum fundi í Borgartúni 6 ,17. apríl s.l. Þá hefur verið gefin út skýrsla um veitingu atvinnuleyfa árið 2001.
12.4.2002
200. fundur Starfsmenntaráðs 10. apríl 2002
200. fundur Starfsmenntaráðs var haldinn miðvikudaginn 10. apríl í fundarsal Vinnumálastofnunar, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu. Eitt mál var á dagskrá fundarins; umræða um umsóknir um styrki úr starfsmenntasjóði.
Alþingi samþykkti frumvarp til laga um starfsmenntun í atvinnulífinu 15. maí 1992. Þar er kveðið á um að ráðherra skipi sjö manna Starfsmenntaráð til tveggja ára sem fari með framkvæmd laganna. Starfsmenntaráð var skipað í fyrsta skipti í ágúst 1992.
Alþingi samþykkti frumvarp til laga um starfsmenntun í atvinnulífinu 15. maí 1992. Þar er kveðið á um að ráðherra skipi sjö manna Starfsmenntaráð til tveggja ára sem fari með framkvæmd laganna. Starfsmenntaráð var skipað í fyrsta skipti í ágúst 1992.
12.4.2002
Atvinnuleysistölur fyrir mars 2002
Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 77.445 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.692 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,7% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í mars 2002.
8.4.2002
Evrópurútan í Ráðhúsinu
Fimmtudaginn 11. apríl n.k. býðst Reykvíkingum og öðrum íbúum höfuðborgarsvæðisins að kynna sér möguleika Íslendinga í evrópsku samstarfi, en þá verður haldinn kynningarfundur um þau mál undir yfirskriftinni Evrópurútan í Ráðhúsinu. Ástæðan fyrir þeirri nafngift er sú að í september s.l. var landsbyggðinni boðið uppá samskonar kynningu þegar Evrópurútan svokallaða ók hringinn í kringum landið með viðkomu á tíu stöðum. En nú er ætlunin að loka hringnum í táknrænni merkingu í Ráðhúsinu í Reykjavík, því eru allir á höfuðborgarsvæðinu sem hafa hugmyndir eða áhuga á að taka þátt í slíku samstarfi eru hvattir til að koma á fundinn í Ráðhúsinu og kanna möguleika sína.
25.3.2002
Nordjobb er sumarvinna á Norðurlöndum.
Markmiðið með Nordjobb er að styrkja norræna samvinnu. Ný kynslóð fær að kynnast hinum Norðurlöndunum. Skilningur á norrænni tungu styrkist líka með þátttöku í Nordjobb. Nordjobb býður ungmennum sumarvinnu í öðru norrænu landi eða sjálfstjórnarsvæði. Þú getur fengið vinnu í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Noregi, Svíþjóð eða Álandseyjum. Það er ekki hægt að fá Nordjobb í heimalandinu. Þú færð laun í samræmi við samninga og borgar skatt í því landi sem þú vinnur.
22.3.2002
Umsóknir í hefðbundna úthlutun Starfsmenntaráðs úr starfsmenntasjóði 2002.
Starfsmenntaráð auglýsti eftir styrkumsóknum í starfsmenntasjóð um miðjan febrúar. Umsóknarfrestur rann út 17. mars og stefnir ráðið að því að afgreiða umsóknir fyrir lok apríl.
15.3.2002
Atvinnuleysistölur fyrir febrúar 2002
Í febrúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 71.134 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.556 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,6% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í febrúar 2002.
28.2.2002
Styrkir til atvinnumála kvenna
Félagsmálaráðuneytið hefur á þessu ári heimild til að úthluta í styrki 20 milljónum króna til atvinnumála kvenna. Tilgangur styrkveitinga er einkum að auka fjölbreytni í atvinnulífi, viðhalda byggð um landið og efla atvinnutækifæri á landsbyggðinni, auðvelda aðgang kvenna að fjármagni og að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna. Áhersla er lögð á að greinargóð lýsing á verkefni fylgi með umsókn, sundurliðuð kostnaðaráætlun svo og að fram komi hvort leitað hafi verið til annarra um fjárstyrk.
15.2.2002
Atvinnuleysistölur fyrir janúar 2002
Í janúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 76.039 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.306 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,4% af áætlun Þjóðhagsstofnunar um mannafla á vinnumarkaði í janúar 2002.
5.2.2002
Við leitum að konum með góðar hugmyndir
Hér með er auglýst eftir umsóknum um lánatryggingu í Lánatryggingasjóð kvenna
Umsóknarfrestur er til 1 mars n.k. Umsóknir skulu sendar til Margrétar Gunnarsdóttur hjá Vinnumálastofnun. Með umsókninni skal m.a. fylgja greinargóð verkefnislýsing og kostnaðaráætlun.
Umsóknarfrestur er til 1 mars n.k. Umsóknir skulu sendar til Margrétar Gunnarsdóttur hjá Vinnumálastofnun. Með umsókninni skal m.a. fylgja greinargóð verkefnislýsing og kostnaðaráætlun.
24.1.2002
Nýtt húsnæði Svæðisvinnumiðlunar Austurlands
Þann 17. ágúst s.l. festi Vinnumálastofnun kaup á húsnæði að Miðási 1 Egilsstöðum til að hýsa starfsemi Svæðisvinnumiðlunar Austurlands.
Seljandi var Kristbjörn Þorbjörnsson. Stofnunin flutti starfsemi sína sunnudaginn 13. janúar s.l. í hið nýja húsnæði.
Um fjögurra ára skeið hefur Svæðisvinnumiðlun Austurlands búið við ófullnægjandi starfsaðstöðu en með tilkomu þessa húsnæðis verður mikil breyting á til bóta fyrir bæði starfsmenn stofnunarinnar og ekki síður fyrir atvinnuleitendur og aðra þá sem nýta vilja sér þjónustu stofnunarinnar. Með tilkomu þessa nýja húsnæðis er starfseminni tryggður samastaður til framtíðar. Húsnæðið er 120 fermetrar og auk afgreiðslunnar eru tvær skrifstofur, opin starfsstöð fyrir fjórða starfsmanninn, aðstaða fyrir atvinnuleitendur til að leita á tölvu að lausum störfum, snyrting og kaffistofa fyrir starfsmenn og svo herbergi til funda- og námskeiðahalda.
Fyrirhuguð er formleg opnun skrifstofunnar í nýja húsnæðinu seint í febrúar 2002.
Seljandi var Kristbjörn Þorbjörnsson. Stofnunin flutti starfsemi sína sunnudaginn 13. janúar s.l. í hið nýja húsnæði.
Um fjögurra ára skeið hefur Svæðisvinnumiðlun Austurlands búið við ófullnægjandi starfsaðstöðu en með tilkomu þessa húsnæðis verður mikil breyting á til bóta fyrir bæði starfsmenn stofnunarinnar og ekki síður fyrir atvinnuleitendur og aðra þá sem nýta vilja sér þjónustu stofnunarinnar. Með tilkomu þessa nýja húsnæðis er starfseminni tryggður samastaður til framtíðar. Húsnæðið er 120 fermetrar og auk afgreiðslunnar eru tvær skrifstofur, opin starfsstöð fyrir fjórða starfsmanninn, aðstaða fyrir atvinnuleitendur til að leita á tölvu að lausum störfum, snyrting og kaffistofa fyrir starfsmenn og svo herbergi til funda- og námskeiðahalda.
Fyrirhuguð er formleg opnun skrifstofunnar í nýja húsnæðinu seint í febrúar 2002.
22.1.2002
Atvinnuleysistölur fyrir desember 2001.
Í desembermánuði síðastliðnum voru skráðir 56.877 atvinnuleysisdagar á landinu öllu, 27.900 dagar hjá körlum og 28.977 dagar hjá konum. Skráðum atvinnuleysisdögum hefur fjölgað um 9.260 frá mánuðinum á undan en hefur fjölgað um 16.752 frá desembermánuði 2000. Mannafli á vinnumarkaði í desember 2001 er áætlaður 141.037 manns.
21.1.2002
Atvinnuleysistryggingasjóður kaupir Engjateig 11
Þann 16. janúar sl. festi Atvinnuleysistryggingasjóður kaup á því húsnæði sem Vinnumálastofnun hefur haft á leigu undanfarin á ár til að hýsa skrifstofu Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins.




English

