Fréttir vinnumálastofnunar
17.12.2003
Verkefnisstjórn vegna atvinnuleysis einstakra hópa
Félagsmálaráðherra og Vinnumálastofnun hafa ákveðið að setja af stað sérstakt átak varðandi langtímaatvinnuleysi og atvinnuleysi ungs fólks. Leitast verður við að greina orsakir atvinnuleysis þessara hópa á einstökum svæðum og setja af stað staðbundin verkefni sem eiga að treysta stöðu viðkomandi hópa á vinnumarkaði, meðal annars með námsframboði við hæfi.
15.12.2003
Fundur um ráðningar Íslendinga á Kárahnjúkasvæðið
9.12.2003
Atvinnuleysi í nóvembermánuði 2003
Í nóvembermánuði síðastliðnum voru skráðir 87.963 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.400 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3% atvinnuleysi miðað við áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins um mannafla á vinnumarkaði í nóvember 2003.
Skýrsla um atvinnuleysi í nóvembermánuði er hér á pdf-formi.
5.11.2003
Athafnakonur
Ráðstefna Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands,Kvennasjóðs Vinnumálastofnunar og Atvinnu- og jafnréttisráðgjafa Byggðastofnunar
Haldin í gamla húsnæði Byggingavörudeildar KB, Borgarnesi 8. nóvember 2003
29.10.2003
Athafnakonur í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn
Dagana 31. október - 1. nóvember n.k. verður sýninga- og ráðstefnuröðin Athafnakonur í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn
Sýningin stendur frá 16:00-19:00 föstudaginn 31. október og frá 13:00-18:00 laugardaginn 1. nóvember. Þann sama dag verður konum boðið upp á örnámskeiðið að verðleggja vöru og mun það standa frá klukkan 10:00- 12:00 þátttakendum að kostnaðarlausu.
10.10.2003
Atvinnuleysi í septembermánuði 2003
9.10.2003
Athafnakonur
Nú á næstu vikum mun Kvennasjóður í samstarfi við Atvinnu- og jafnréttisráðgjafa Suður- og Norðausturkjördæma standa fyrir sýninga- og ráðstefnuröðinni Athafnakonur. Um er að ræða sýningar á starfsemi fyrirtækja sem notið hafa stuðnings frá Kvennasjóði. Í tengslum við hverja sýningu mun sjóðurinn standa fyrir örnámskeiði fyrir konur í atvinnurekstri auk ráðstefnu um atvinnumál kvenna.
25.9.2003
Úttektir á vinnumarkaðsaðgerðum
Vinnumálastofnun hefur gert úttektir á annars vegar styrkjum til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana 2002-2003 og hins vegar á úrræðum svæðisvinnumiðlana 2002. Í greinargerð um sérstök verkefni kemur m.a. fram að af þeim 130 einstaklingum sem komu af atvinnuleysisskrá og tóku þátt í 58 sérstökum verkefnum á árinu 2002 voru 73% ekki á skrá þremur mánuðum eftir lok verkefnisins. Þá kemur m.a. fram í skýrslu um úrræði svæðisvinnumiðlana 2002 að mikil fjölgun hefur orðið á þátttakendum í úrræðum á vegum svæðisvinnumiðlana á milli áranna 2001 og 2002 en árið 2001 voru þeir um 1600 en um 2200 árið 2002.
24.9.2003
ÚTÞRÁ AFTUR!
Kynning á námi, leik og starfi erlendis
fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára.
Fyrir ykkur sem misstuð af okkur í febrúar
og ykkur sem viljið koma aftur!
Föstudaginn 3.október n.k. býðst ungu fólki á aldrinum 15-25 ára að kynna sér þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða varðandi nám, leik og starf erlendis. Kynningin fer fram í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5, og stendur frá 15:00 til 18:00.
Ef þig langar til útlanda til lengri eða skemmri dvalar er Útþrá sniðið að þínum þörfum. Kynntu þér þá fjölmörgu möguleika sem í boði eru, fáðu þér svalandi drykk, hlustaðu á framandi tónlist og spjallaðu við starfsmenn og þátttakendur úr hinum ýmsu verkefnum í vinalegu umhverfi Hins Hússins.
Eftirfarandi aðilar taka á móti þér opnum örmum:
- AFS á Íslandi (Alþjóðleg fræðsla og samskipti)
- Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins
- Alþjóðleg Ungmennaskipti (AUS)
- EES-Vinnumiðlunin
- Nordjobb
- Snorri West verkefnið
- Stúdentaferðir
- Ungt fólk í Evrópu (UFE)
- Upplýsingamiðstöð Hins Hússins / Eurodesk
Hlökkum til að sjá þig....
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hins Hússins www.hitthusid.is. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.
24.9.2003
ÚTÞRÁ AFTUR!
Kynning á námi, leik og starfi erlendis
fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára.
Fyrir ykkur sem misstuð af okkur í febrúar
og ykkur sem viljið koma aftur!
Föstudaginn 3.október n.k. býðst ungu fólki á aldrinum 15-25 ára að kynna sér þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða varðandi nám, leik og starf erlendis. Kynningin fer fram í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5, og stendur frá 15:00 til 18:00.
Ef þig langar til útlanda til lengri eða skemmri dvalar er Útþrá sniðið að þínum þörfum. Kynntu þér þá fjölmörgu möguleika sem í boði eru, fáðu þér svalandi drykk, hlustaðu á framandi tónlist og spjallaðu við starfsmenn og þátttakendur úr hinum ýmsu verkefnum í vinalegu umhverfi Hins Hússins.
Eftirfarandi aðilar taka á móti þér opnum örmum:
- AFS á Íslandi (Alþjóðleg fræðsla og samskipti)
- Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins
- Alþjóðleg Ungmennaskipti (AUS)
- EES-Vinnumiðlunin
- Nordjobb
- Snorri West verkefnið
- Stúdentaferðir
- Ungt fólk í Evrópu (UFE)
- Upplýsingamiðstöð Hins Hússins / Eurodesk
Hlökkum til að sjá þig....
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hins Hússins www.hitthusid.is. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.
24.9.2003
Úttektir á vinnumarkaðsaðgerðum
19.9.2003
Atvinnuvegasýning á Akranesi
Svæðisvinnumiðlun Vesturlands og EES vinnumiðlun sameinast um kynningarbás á sýningunni. Mjög góðar viðtökur hafa verið meðal fyrirtækja og stofnana við þátttöku í atvinnuvegasýningunni Þeir fiska sem róa. Sýningin fer fram í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum dagana 26. - 28. september. Tæplega 70 fyrirtæki hafa skráð þátttöku og spanna þau afar vítt svið í atvinnulífi staðarins, allt frá einyrkjafyrirtækjum til stærstu fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins. Auk heimamanna tekur iðnaðarsvæðið á Grundartanga þátt í sýningunni og ýmsar stofnanir sem starfa á Vesturlandsvísu.
Föstudaginn 26. september klukkan 15 mun Forseti Íslands opna sýninguna og verður þann dag einungis um fagsýningu að ræða þar sem boðsgestir fyrirtækjanna mæta. Laugardaginn 27. september verður sýningin opin frá 11 - 18, og sunnudaginn 28. september frá 12 - 17.
18.9.2003
Menntasmiðja ungs fólks á Akranesi
Menntasmiðja ungs fólks á Akranesi hóf göngu sína þann 12. september. Þetta er 12 vikna nám sem lýkur 4. desember. Kennsla er frá 9 - 15 alla virka daga. 13 nemendur hófu námið, þar af eru 10 á vegum Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands.
Menntasmiðjan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16 - 28 ára og miðar að því að auka lífsleikni þeirra og getur auðveldað þeim að takast á við breytingar í lífinu. Menntasmiðjan er góður undirbúningur fyrir hvers konar starf eða frekara nám því námið er hæfileg blanda bóklegs og verklegs náms, líkamsræktar og starfs- og námskynninga.
Aðilar að Menntasmiðjunni eru Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Svæðisvinnumiðlun Vesturlands og Akraneskaupstaður. Áður hafa tvær menntasmiðjur verið starfræktar fyrir konur á Akranesi. Umsjón með Menntasmiðju ungs fólks á Akranesi hefur Arnar Símonarson.
15.9.2003
Afhending Starfsmenntaverðlaunanna 2003
Starfsmenntaverðlaunin voru afhennt í fjórða sinn föstudaginn 12. september síðastliðinn. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en þau hlutu: Eimskip í flokki fyrirtækja, Eftirmenntun vélstjóra í flokki fræðsluaðila og Verkmenntaskólinn á Akureyri í opnum flokki. Hægt er að skoða myndir frá afhendingunni á heimasíðu Viku símenntunar og ítarlegri umfjöllun um niðurstöður dómnefndar með því að smella hérna.
15.9.2003
Afhending Starfsmenntaverðlaunanna 2003
12.9.2003
Atvinnuleysi í ágústmánuði 2003
11.9.2003
Atvinnuleysi í ágústmánuði 2003
Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 93.574 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.452 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,9% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í ágúst 2003. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í ágúst 2003 var 152.492.
15.8.2003
Atvinnuleysi í júlímánuði 2003
25.7.2003
Við leitum að konum með góðar hugmyndir
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst 2003 nk. Umsóknir skulu sendar til Margrétar Gunnarsdóttur hjá Vinnumálastofnun. Með umsókninni skal m.a. fylgja greinargóð verkefnislýsing og kostnaðaráætlun.
11.7.2003
Atvinnuleysi í júnímánuði 2003
10.7.2003
Sjómennt og Sjómannaskólinn gera samstarfssamning um starfsmenntun fyrir sjómenn
Sjómennt - samstarfsvettvangur Landssamband ísl. útvegsmanna og Sjómannasambands Íslands um starfsmenntun sjómanna og Menntafélagið ehf. sem taka mun við rekstri Stýrimannaskólans og Vélskóla Íslands 1. ágúst nk. undirrituðu þ. 9. júlí sl. samning um fræðslu og starfsmenntun sjómanna.
4.7.2003
Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna árið 2003
Áhersla var lögð á atvinnusköpun.
Alls bárust 160 umsóknir og samþykktir hafa verið 44 styrkir sem félagsmálaráðherra veitir. Fjárhæð styrkveitinga nemur tæpum 25 milljónum króna og eru verkefnin af ýmsum toga. Hér er hægt að sjá lista yfir styrkþega og tegund verkefna.
13.6.2003
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í samvinnu við
CEDEFOP, Evrópumiðstöð um þróun starfsmenntunar,
stóð fyrir rannsókn á viðhorfi fólks í 17 löndum til símenntunar.
Út er komin skýrsla með tölfræðilegum niðurstöðum úr íslenskum
hluta rannsóknarinnar en von er á lokaskýrslu með samanburði
á milli landanna seinna á þessu ári. Gangasöfnun hérlendis var
í höndum IBM, Business Consulting Services á Íslandi, og kostuð
af menntamálaráðuneytinu og Starfsmenntaráði.
Hér er hægt að sækja skýrsluna en ath. að skýrslan er 4meg að stærð.
13.6.2003
Atvinnuleysi í maímánuði 2003
Í maímánuði síðastliðnum voru skráðir 116.419 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.298 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,6% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í maí 2003. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í maí 2003 var 146.302.
5.6.2003
Styrkveitingar
26.5.2003
Úrskurðir á netið
Allar persónuupplýsingar hafa verið fjarlægðar úr úrskurðunum. Þetta fyrirkomulag mun gefa bótaþegum, úthlutunarnefndum og starfsfólki úthlutunarnefnda og svæðisvinnumiðlana gott verkfæri til að athuga hvernig úrskurðað hefur verið í sambærilegum málum hjá úrskurðarnefndinni. Með því móti geta þeir aðilar sem meta bótarétt og sýsla með atvinnuleysisbætur samræmt vinnubrögð sín svo tryggt sé að þau séu eins um allt land.
Hægt er að nálgast þessa úrskurði undir Atvinnul.tryggingar / úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta.
Gert er ráð fyrir að allir úrskurðir frá árinu 2002 verði fljótlega settir inn á netið.
Úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta er skipuð af félagsmálaráðherra til fjögurra ára í senn skv. 17. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í lögunum segir að nefndarmenn skuli hafa víðtæka þekkingu á vinnumarkaðinum. Formaður og varamaður hans skulu fullnægja skilyrðum til þess að vera skipaðir héraðsdómarar. Úrskurðir nefndarinnar fela í sér endanlega stjórnvaldsákvörðun.
Í núverandi úrskurðarnefnd sitja nú: Friðjón Guðröðarson fyrrv. sýslumaður sem formaður, Árni Benediktsson fyrrv. framkvæmdastjóri og Benedikt Davíðsson fyrrv. forseti ASÍ
15.4.2003
Úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins
14.4.2003
Fréttatilkynning frá Vinnumálastofnun
11.4.2003
Atvinnuleysi í marsmánuði 2003
14.3.2003
Rýmra húsnæði hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins að Engjateigi.
Þ. 12. mars sl. undirritaði Þórður Ólafsson formaður stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs kaupsamning fyrir hönd sjóðsins á húsnæði í eigu Engjateigs 11 ehf. sem er eignarhaldsfélag Kiwanishreyfingarinnar. Um er að ræða suðurhluta af kjallara hússins alls um 190 fermetrar að stærð sem nýtt hefur verið sem samkomu- og fundarsalir. Kaupverðið var 14, 6 milljónir króna. Með þessum kaupum hefur Atvinnuleysistryggingasjóður eignast allan kjallarann í húsinu og 1. hæðina. Með sameign er húsnæðið sem sjóðurinn á og leigir Vinnumálastofnun fyrir starfsemi Vinnumiðlunar höfðuborgarsvæðisins orðið um 920 fermetrar. Kiwanishreyfingin mun áfram eiga 2. og 3. hæð hússins og reka þar starfsemi sína.
Vinnumiðlunin hefur haft samkomuaðstöðuna í kjallaranum á leigu til skamms tíma í senn en með þessari aðgerð verður hægt að innrétta húsnæðið með þarfir skrifstofunnar í huga og bjóða upp á miklu betri og rýmri fundaraðstöðu en áður. Þá verður einnig hægt að standa fyrir námskeiðum af margvíslegu tagi í fundarsalnum sem skrifstofan hefur áður þurft að standa fyrir vítt og breitt um borgina.
Starfsmannaaðstaða sem nú er á 1. hæð verður einnig flutt í hið nýja húsnæði og þá rýmkast fyrir allri vinnslu og afgreiðsluaðstöðu á skrifstofunni.
Um 25 starfsmenn starfa á skrifstofu Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins en hundruð skjólstæðinga sækja skrifstofuna heim á degi hverjum.
14.3.2003
Atvinnuleysi í febrúarmánuði 2003
13.3.2003
Styrkir vegna starfsmenntunar 2003
10.3.2003
Styrkir til atvinnumála kvenna.
24.2.2003
Aðgerðir gegn atvinnuleysi
Eftirfarandi fréttatilkynning var birt fjölmiðlum á fundi félagsmálaráðherra Páls Péturssonar og forráðamanna Vinnumálastofnunar með blaðamönnum í dag:
Atvinnuleysi hefur í vetur aukist mun hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Um þessar mundir eru um 6200 einstaklingar skráðir atvinnulausir sem eru um 4% af vinnuaflinu. Nýboðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Reykjavíkurborgar í flýtingu opinberra framkvæmda munu fljótt breyta þessari þróun og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi munu á næstu árum kalla eftir miklu vinnuafli.
Í ljósi atvinnuástandsins hafa Vinnumálastofnun og Atvinnuleysistryggingasjóður að undanförnu aukið mjög framboð vinnumarkaðsúrræða til atvinnulausra en skipulagning þeirra og umsjón er á hendi svæðisvinnumiðlana sem heyra undir Vinnumálstofnun og eru staðsettar í öllum landsfjórðungum.
Atvinnuleysistryggingasjóður hefur á þessu ári 112 milljónir króna til ráðstöfunar til vinnumarkaðsúrræða og á næstu vikum verður lögð sérstök áhersla á að kynna hin svokölluðu átaksverkefni (sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlana) fyrir stofnunum ríkis og sveitarfélaga og fyrirtækjanna í landinu. Þetta úrræði miðast við að fá stofnanir og fyrirtæki til að ráða til sín starfsfólk af atvinnuleysisskrá til þess að sinna sérstökum verkefnum sem ella hefðu ekki verið unnin. Kynningarbæklingar hafa verið gefnir út um þetta og um önnur úrræði svæðisvinnumiðlana sem dreift verður markvisst til viðskiptavina.
Markmiðið með þessum aðgerðum er að á næstu mánuðum muni um þrjú þúsund manns sem skráðir eru atvinnulausir taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum fyrir atbeina svæðisvinnumiðlana.
Fyrir utan úrræði sem beinlínis er beint að atvinnulausum hefur félagsmálaráðuneytið í samvinnu við Atvinnuleysistryggingasjóð lagt stóraukna fjármuni í starfsmenntun bæði með starfsemi Starfsmenntaráðs félagsmálaráðneytisins og með stuðningi við fræðslusjóði verkafólks og sjómanna, Starfsafl, Landsmennt og Sjómennt. Þessir sjóðir eru nú að styðja margháttaða fræðslustarfsemi sem tvímælalaust styrkir stöðu þeirra á vinnumarkaði sem hennar njóta.
14.2.2003
Atvinnuleysi í janúarmánuði 2003.
13.2.2003
Baráttan gegn atvinnuleysinu auðvelduð
Þessi ákvörðun mun vonandi gefa jákvæð skilaboð til atvinnulífins og leiða af sér störf í fleiri atvinnugreinum en verktaka og byggingastarfsemi.
Samhliða þessu munu svæðisvinnumiðlanir Vinnumálastofnunar stórauka framboð sitt af einstaklingsmiðuðum vinnumarkaðsúrræðum fyrir skjólstæðinga sína til örva fólk í skipulagðri atvinnuleit og samhliða að þjálfa með sér hæfni til að takast á við ný störf eða verkefni.
Öllu þessu ber að fagna.
Gissur Pétursson forstjóri
Vinnumálastofnunar
13.2.2003
Styrkir vegna starfsmenntunar 2003.
12.2.2003
ÚTÞRÁ 2003
fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára
Föstudaginn 28. febrúar n.k. býðst ungu fólki á aldrinum 15-25 ára að kynna sér þau fjölbreyttu tækifæri sem standa til boða varðandi nám, leik og starf erlendis. Kynningin fer fram í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5, og stendur frá 16:00 til 18:00.
7.2.2003
Opinn fundur Starfsmenntaráðs
(bak við Lækjarbrekku).
Á dagskrá er kynning á áherslum Starfsmenntaráðs við úthlutanir úr starfsmenntasjóði 2003.
21.1.2003
Við leitum að konum með góðar hugmyndir
Umsóknarfrestur er til 19. febrúar nk. Umsóknir skulu sendar til Margrétar Gunnarsdóttur hjá Vinnumálastofnun. Með umsókninni skal m.a. fylgja greinargóð verkefnislýsing og kostnaðaráætlun.
17.1.2003
Atvinnuleysi í desembermánuði 2002
14.1.2003
Nýr forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Suðurlands
Sigurður hefur þegar hafið störf og verður kominn til fullra starfa á Svæðisvinnumiðluninni á næstu tveimur vikum.
Sigurður hefur starfað á Selfossi sem kennari við grunnskólann, framkvæmdastjóri á ferðaþjónustusviði KÁ, sem verkefnisstjóri við byggingu Hótel Selfoss og sem námsráðgjafi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Einnig hefur hann reynslu af störfum að félagsmálum, m.a. í almennum félögum og sem sveitarstjórnarmaður í bæjarstjórn Selfoss 1990 - 1998 og sem nefndarmaður og formaður félagsþjónustunefndar Selfoss og Árborgar til 10 ára. Þá hefur Sigurður einnig unnið við blaðamennsku sem fréttaritari Morgunblaðsins í ríflega tvo áratugi.
Eiginkona Sigurðar er Esther Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi.




English

